Innlent

Fjögur mál er varða áreitni send til fagráðs

Kristjana Björg Guðbrandsdóttir skrifar
Fjögur mál er varða kynferðislega áreitni hafa borist sérstöku fagráði lögreglu til meðferðar á því rúma eina og hálfa ári sem það hefur starfað og einu þeirra er enn ólokið.

„Málsmeðferð hefur tekið lengri tíma en heppilegt er. Við ætlum að endurskoða verklagið hjá okkur, þetta er nýtt apparat,“ segir Davíð Þór Björgvinsson, formaður fagráðsins.

Fagráðið mun koma saman í næstu viku og ræða mögulegar úrbætur. Davíð segist ekki geta gefið upp hvernig málunum hefur lokið enda sé ráðið eingöngu ráðgefandi.

Í gær greindi Fréttablaðið frá því að starfsmenn lögreglu hefðu greint frá óviðeigandi athugasemdum starfsfélaga sinna í viðtölum við Leif Geir Hafsteinsson vinnusálfræðing sem ráðinn var til að greina samskiptavanda innan embættis lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.

Það var í kjölfar viðamikillar rannsóknar Finnborgar Salome Steinþórsdóttur  á starfsumhverfi lögreglumanna árið 2013 undir leiðsögn dr. Gyðu Margrétar Steinþórsdóttur að ríkislögreglustjóri ákvað að stofna fagráðið.

Í rannsókninni voru lögreglumenn spurðir um kynferðislega áreitni, athugasemdir og orðróm. Niðurstaða Finnborgar var að stór hluti karla og kvenna hjá lögreglunni hafi orðið fyrir kynferðislegri áreitni í starfi sínu eða í tengslum við starf sitt hjá lögreglunni og að konur verða oftar fyrir kynferðislegri áreitni en karlar.


Tengdar fréttir

Starfsmenn sögðu frá óviðeigandi athugasemdum

Starfsmenn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu greindu Leifi Geir Hafsteinssyni vinnusálfræðingi frá ummælum vinnufélaga sinna er vísuðu í kynferði þeirra og þeim þótti óviðeigandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×