Fótbolti

Fjögur lið með fullt hús stiga í þýsku deildinni

Stefán Árni Pálsson skrifar
Franck Ribéry fagnar hér marki sínu í kvöld. Hann fékk gult spjald fyrir að fara úr treyjunni.
Franck Ribéry fagnar hér marki sínu í kvöld. Hann fékk gult spjald fyrir að fara úr treyjunni. Mynd / Getty Images
Fimm leikir fóru fram í þýsku úrvalsdeildinni í dag og þar ber helst að nefna frábær sigur þýsku meistaranna á Mainz 2-0.

David Alaba byrjaði leikinn á því að misnota vítaspyrnu en það var Franck Ribéry sem kom heimamönnum í FC Bayern yfir þegar tuttugu mínútur voru eftir af leikum.

Arjen Robben gerði síðan útum leikinn fyrir heimamenn stuttu síðar og meistararnir unnu að lokum öruggan sigur.

Hannover vann fínan sigur á Schalke en Szabolcs Huszti og Mame Biram Diouf gerðu mörk Hannover í leiknum.

Hoffenheim og Freiburg gerðu 3-3 jafntefli í miklum markaleik. Sejad Salihovic, Kevin Volland og Tobias Strobl gerðu allir sitt markið hver fyrir Hoffenheim og Oliver Sorg, Karim Guedé og Sebastian Freis gerðu mörk Freiburg.

Dortmund, Leverkusen, Bayern og Mainz eru öll með fullt hús stiga eftir þrjár umferðir með níu stig í efstu sætunum.

Úrslit dagsins:

Bayern - Nürnberg 2 - 0

Hannover - Schalke - 2 - 1  

Hoffenheim - Freiburg 3 - 3           

Leverkusen - Mönchengladbach 4 - 2               

Mainz - Wolfsburg - 2 - 0




Fleiri fréttir

Sjá meira


×