Handbolti

Fjögur íslensk mörk í öruggum sigri Löwen

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Alexander Petersson, Stefán Rafn Sigurmannsson og félagar í Rhein-Neckar Löwen gerðu út um leikinn í fyrri hálfleik í öruggum 14 marka sigri á Lemgo í dag.

Löwen hefur verið á góðu skriði undanfarnar vikur og situr í toppsæti þýsku úrvalsdeildarinnar þegar 26 umferðir eru búnar.

Heimamenn í Löwen leiddu 17-9 í hálfleik og gerðu út um leikinn strax á upphafsmínútum seinni hálfleiks. Lauk leiknum með fjórtán marka sigri en þetta var fimmti sigur Löwen í röð.

Alexander var næst-markahæstur í liði Löwen með fjögur mörk í dag en Stefán Rafn komst ekki á blað.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×