Innlent

Fjársvikarar fá dóm sjö árum seinna: Óku á tré í Árbænum og sviku út bætur

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Í öðru tilvikinu unnu mennirnir saman að því að svíkja fé út úr tryggingafélagi en í hinu var annar maðurinn einn á ferð. Sá sem var ákærður fyrir bæði brotin var sá er hlaut lengri dóm.
Í öðru tilvikinu unnu mennirnir saman að því að svíkja fé út úr tryggingafélagi en í hinu var annar maðurinn einn á ferð. Sá sem var ákærður fyrir bæði brotin var sá er hlaut lengri dóm. Vísir/Stefán

Héraðsdómur Reykjaness hefur dæmt tvo karlmenn á þrítugsaldri fyrir tilraun til fjársvika. Annar þeirra fékk tíu mánaða dóm, þar af átta mánuði skilorðsbundna. Hinn hlaut fjögurra mánaða skilorðsbundið fangelsi. Dómur var kveðinn upp í gær en málið var tekið fyrir í héraði í annað skiptið eftir að Hæstiréttur hafði vísað því aftur heim í hérað. Niðurstaða héraðsdóms var óbreytt frá fyrri dómi.

Í öðru tilvikinu unnu mennirnir saman að því að svíkja fé út úr tryggingafélagi en í hinu var annar maðurinn einn á ferð. Sá sem var ákærður fyrir bæði brotin var sá er hlaut lengri dóm.

Brotin áttu sér stað árið 2008. Í öðru þeirra, sem átti sér stað í janúar það ár, bar maðurinn því við að hann hefði misst stjórn á bifreið sinni í hálku svo bílinn hafi hafnað á tré við Rofabæ í Reykjavík. Blekkti maðurinn, sem á langan sakaferil að baki, Vátryggingafélag Íslands til að greiða sér 250 þúsund krónur í bætur þrátt fyrir að búið væri að gera við bifreiðina hjá Verði að kostnaðarlausu. Maðurinn hafi svo haldið áfram að krefja VÍS um viðbótarbætur vegna málunar og frekari viðgerðar á bíl sem þó var búið að gera við að fullu.

Settu á svið árekstur

Í hinu brotinu unnu mennirnir saman og hlutu dóm fyrir að útbúa og skila til Vátryggingafélags Íslands rangri tjónstilkynningu vegna tjóns á bifreið annars þeirra. Báru þeir því fyrir sig að öðrum bílnum hefði verið bakkað á hinn sem hefði valdið miklu tjóni á síðarnefnda bílnum. 

Af ljósmyndum og niðurstöðu bíltæknirannsóknar Gnostika taldi dómurinn útilokað að skýringar mannanna tveggja og framburður gæti átt við nokkur rök að styðjast. Hann væri tilviljunarkenndur, ómarkviss og mönnunum bæri ekki saman. Skemmdirnar á bílnum hafi ekki verið af völdum þessa bíls. Áætlaður kostnaður af viðgerð eða yfirtöku bifreiðarinnar var metinn á bilinu ein til tvær milljónir króna.

Dómari ákvað að skilorðsbinda dóma mannanna meðal annars vegna þess hve mikill dráttur hefði orðið á málinu enda brotin sjö ára gömul.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×