Fjarstæðukenndar skýringar á Ironmaster myndbandi

Vísir Innlent 09. maí 2008 13:16
Fjarstæðukenndar skýringar á Ironmaster myndbandi

Guðmundur Jónsson hefur ávallt neitað því að hafa haft samræði við nokkra þeirra kvenna sem dvöldu hjá honum sem skjólstæðingar á meðferðaheimilinu Byrginu.

Það hefur hann gert þrátt fyrir mikið magn sönnunargagna sem benda til hins gagnstæða. Eitt frægasta sönnunargagnið er líklega myndband sem sýnir hann stunda bdsm-kynlíf með einum af kvenkyns skjólstæðingi sínum. Sú lagði síðar fram kæru á hendur honum. Myndbandið gekk eins og eldur um sinu um internetið en lýsingar Guðmundar sjálfs á því hvernig það kom til eru afar forvitnilegar.

Guðmundur segir að í byrjun október 2006 hafi konan, sem sést með honum á myndbandinu, spurt hann að því hvort hann vildi sitja fyrir í ljósmyndatökum en hún hefði sagst hafa mikinn áhuga á ljósmyndun og vildi reyna fyrir sér í því fagi. Konan hafi afhent honum bækling sem hafi innihaldið teikningar af konulíkömum í fjötrum, konum af asísku bergi brotnar. Guðmundur segist hafa séð að þarna hafi verið myndir sem flokka mætti undir líkamsbindingar og hefði hann tekið bæklinginn með sér og sýnt konu sinni, Helgu.

Hann hafi síðan ákveðið að skila bæklingnum til konunnar og ætlunin hafi verið að gera henni það alveg ljóst að það kæmi ekki til greina að hann sæti fyrir á ljósmyndum hjá henni eins og ljósmyndirnar sýndu í bæklingnum.

Guðmundur segist hafa komið í íbúð konunnar þennan dag. Hann hafi rætt við hana og þegið hjá henni kaffisopa og hún hafi sýnt honum ljósmyndavél, vídeóupptökuvél á þrífæti, ferðatölvu, harðan disk og ferðageislaspilara. Síðan gerðist það að hann hafi fundið til vanlíðanar og farið í „blackout", óminnisástand. Það næsta sem hafi gerst var að hann rankaði við sér um nóttina og þá hefði hann verið einn í íbúðinni, liggjandi í sófa í stofunni og verið klæddur í boxer-nærbuxur, í skyrtu og sokkum en gallabuxur hans hafi legið á gólfi við hlið sófans.

Kvaðst Guðmundur hafa verið nokkuð lengi að átta sig á því hvað hafi gerst og hvernig væri komið fyrir honum Daginn eftir segist hann svo hafa fundið í bakpoka sínum áfengispela. Það hefði komið honum mjög á óvart að finna pelann, sem hafi verið vodkapeli, og við skoðun hans mátti sjá þykkan vökva, gulleitan. Það hafi verið smálögg í pelanum og hefði hann fundið við að þefa úr honum að innihaldið var smjörsýra en hann hefði þekkt það á lykt og útliti.

Guðmundur er þess fullviss að konan hafi byrlað sér ólyfjan og gert hið umdeilda Ironmaster myndband á meðan. Aðspurður hvernig stæði þá á því að samtöl hans og konunnar heyrðust á myndbandinu, svaraði Guðmundur að konan hefði tekið upp rödd hans við fyrra tilefni og skeytt henni inn á myndbandið.


Fleiri fréttir - Innlent

Innlent 24. maí. 2012 21:28

Búinn að skila meðmælendalista

„Við erum búin að skila meðmælendalistunum," segir Hannes Bjarnason, forsetaframbjóð...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 20:30

Íslendingar duga ekki á Drekasvæðið - gefast upp

Útgerðarmaðurinn sem er á leið í olíuleit á Drekasvæðinu segir að ekki þýði lengur að hafa...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 20:00

"Menntaskólakerfið er undirlagt af kannabisneyslu"

Magnús Stefánsson, forvarnarfulltrúi, hefur miklar áhyggjur af aukinni neyslu ungmenna á k...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 21:34

Verjandi líkti al-Thani málinu við mál Mladic

Ragnar H. Hall, verjandi Ólafs Ólafssonar, í al Thani málinu líkti stöðu sakborninga þess ...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 21:30

Björk fékk Webby verðlaunin

Björk Guðmundsdóttur voru veitt Webby verðlaunin í vikunni í flokknum listamaður ársins. ...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 19:56

Jóhanna og Füle ræddu gjaldeyrishöftin

Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, fundaði í dag með Stefan Füle, framkvæmdastjóra ...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 19:30

Catalina lenti á Reykjavíkurflugvelli

Catalina flugbáturinn, sem verður helsti sýningargripur flugdagsins í Reykjavík, lenti á R...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 18:45

Íhuga að hætta við komu skemmtiferðaskips vegna tollalaga

Franskt félag íhugar að hætta við fyrirhugaða siglingu skemmtiferðaskips við Íslandsstrend...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 18:49

Verjandi Barkar furðar sig á umfjöllun fjölmiðla

Verjandi Barkar Birgissonar, sem grunaður er um að hafa banað mann á Litla Hrauni 17. maí ...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 18:30

Fjölskyldufyrirtæki tapaði gengismáli

Skuldastaða yfir þúsund fyrirtækja er í uppnámi eftir að Hæstiréttur sýknaði Lýsingu nú sí...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 17:58

Hæstiréttur sýknar Fylki

Hæstiréttur sýknaði í dag Íþróttafélagið Fylkir af kröfum Sveins Rafns Eiðssonar en hann s...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 16:58

Byssumaður reyndist vera leikari

Sem betur fer eru útköll lögreglu stundum byggð á misskilningi. Þannig var því t.d. farið ...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 16:42

Lögmenn Annþórs ósáttir við framgang lögreglu

Lögmenn Annþórs Kristjáns Karlssonar, sem grunaður er um að hafa banað Sigurði Hólm Sigurð...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 16:17

Í aðgerð vegna fótbrots - konan hryggbrotnaði

Karlmaðurinn, sem féll niður um 40 metra þegar að brún á Lágey Dyrhólaeyjar gaf sig í dag,...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 15:36

Könnuðust ekki við að styðja Ástþór

Stikkprufur sem yfirkjörstjórn í Norðausturkjördæmi hefur framkvæmt hefur leitt í ljós að ...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 14:59

Þjóðaratkvæðagreiðsla fer fram um tillögur stjórnlagaráðs

Þingmenn samþykktu nú á þriðja tímanum tillögur um þjóðaratkvæðagreiðslu um tillögu stjórn...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 14:56

Íbúar kjósa um sameiningu í haust

Íbúar Garðabæjar og Álftaness munu í haust greiða atkvæði um það hvort að sameina eigi sve...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 14:48

Næstum helmingur ók of hratt í Sigtúni

Brot 46 ökumanna voru mynduð í Sigtúni í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 14:47

Kannabis í Kópavogi

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í húsi í Kópavogi eftir hádegi í gæ...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 14:16

Björgunarsveitarmaður: Kraftaverk hvað þau sluppu vel

"Þetta er ekkert annað en kraftaverk,“ segir Grétar Einarsson úr björgunarsveitinni ...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 14:08

Tekur 500 klukkustundir að fara yfir málskjölin

Ætla má að það taki verjendur 500 klukkustundir að fara yfir málskjöl í al-Thani málinu ge...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 14:00

Druslugangan haldin í annað sinn

"Þetta gekk rosalega vel í fyrra og þátttakan var framar öllum vonum. Þess vegna er ekkert...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 12:42

Tillaga um að setja ESB í þjóðaratkvæði í haust felld á þingi

Tillaga Vigdísar Hauksdóttur þingkonu Framsóknarflokksins um hvort efna skuli til þjóðarat...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 12:25

Vill að Alþingi kaupi Landsímahúsið undir skrifstofur

Falla á frá byggingaráformum á skrifstofuhúsnæði Alþingis við Austurvöll en kaupa þess í s...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 11:58

Féllu af syllu í Dyrhólaey

Fjórir ferðamenn duttu niður af syllu í Dyrhólaey í dag þegar hún gaf sig og slösuðust þrí...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 11:21

Ekki þorandi að flytja Börk í dóminn - úrskurðað um varðhald í fangelsinu

Kveða átti upp gæsluvarðhaldsúrskurð yfir Annþóri Kristjáni Karlssyni og Berki Birgisson í...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 11:09

Viðbrögð Grétu og Jónsa - myndband

Gréta Salóme og Jónsi stóðu sig með stakri prýði í forkeppni Eurovision á þriðjudaginn. Þa...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 11:00

Allt að þriggja ára fangelsi liggur við brotum starfsmannanna

Fyrrverandi lögreglumennirnir hjá sérstökum saksóknara gætu átt yfir höfði sér allt að þri...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 10:10

Björk í samstarfi við bókasafn í New York

Björk Guðmundsdóttir er komin í samstarf við bókasafn í New York og aðrar stofnanir. Verke...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 09:17

Hreindýr trufla ökumenn

Hreindýr hafa verið á ferli í kringum Hallormsstaðaskóg undanfarið en um er að ræða hóp ta...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 08:01

Verkfall í Noregi

Um 25 þúsund opinberir starfsmenn í Noregi hófu í morgun verkfallsaðgerðir eftir að samnin...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 07:30

Barn fann amfetamín í leikskólanum

Fimm ára drengur fann í febrúar poka með amfetamíni á leikskólanum Jörfa. Nóg til að valda...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 15:16

Catalina að koma en flugsýningu frestað

Catalina-flugbáturinn, sem verður helsti sýningargripur flugdagsins í Reykjavík, er nú á l...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 07:00

Þyrla sótti veikan sjómann

Þyrla Landhelgisgæslunnar, TF-LÍF, sótti veikan sjómann í gær af bát sem var að veiðum aus...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 07:00

Vill ekki gefa ungu fólki falsvonir

Mögulegt er að lækka þurfi ávöxtunarkröfu lífeyrissjóðanna úr 3,5% vegna efasemda um að sv...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 06:30

Vill að borgin stöðvi háhýsi úr fortíðinni

Íbúi í Vesturbænum vill að borgin hindri að sjö hæða hús rísi við höfnina. Byggingin var s...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 06:00

Sterkt efni getur hæglega verið banvænt

Hálft til eitt gramm af amfetamíni getur verið stórhættulegt börnum, til dæmis ef þau mynd...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 06:00

Veiðimenn vilja gott sambýli

Borgarstjórn hefur samþykkt breytingu á deiliskipulagi sem gerir líkamsræktarfyrirtækinu B...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 05:30

Samstarf um norðurslóðamál

Háskólinn á Akureyri og Háskóli Pierre et Marie Curie skrifuðu undir viljayfirlýsingu um s...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 05:30

Gamla lánið er enn hagstæðast

Stjórn Faxaflóahafna hafnar öllum átta tilboðunum sem bárust í endurfjármögnun á langtímal...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 05:30

Borgin byggir upp skólalóðir

Sett verða upp ný boltagerði við tvo grunnskóla í Reykjavík í sumar; Breiðagerðisskóla og ...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 05:30

Frakkar stórir í þorskkaupum

Fiskkaupendur í Frakklandi keyptu á fyrsta ársfjórðungi þessa árs 45% meira af ferskum þor...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 05:00

Eiga 25.000 skópör á lagernum

Ný íþróttavöruverslun undir merkjum Sports Direct opnar við Smáratorg í Kópavogi á laugard...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 05:00

ESA skýrir samkeppnisreglur sínar

ESA, eftirlitsstofnun EFTA, hefur tekið upp nýjar reglur sem skýra eiga hvenær samkeppnisa...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 05:00

Annþór og Börkur harðneita allri sök

Tveir kunnir ofbeldismenn og refsifangar á Litla-Hrauni neita því alfarið að bera ábyrgð á...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 04:30

Alls eru 94 stjórnarfrumvörp óafgreidd

Samkvæmt starfsáætlun verður þingi frestað 31. maí og því aðeins fjórir þingdagar eftir. F...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 04:30

Aðalstigi fæst ekki færður

Byggingarfulltrúinn í Reykjavík hefur hafnað veitingu leyfis fyrir ýmsum breytingum innand...  

Meira
Innlent 23. maí. 2012 22:37

Sóldögg kemur fram á Bestu útihátíðinni

„Það verður löðrandi nostalgía á Bestu útihátíðinni í sumar." Þetta segir Bergsveinn...  

Meira
Innlent 23. maí. 2012 21:30

Krefjast þingrofs og kosninga á mismunandi forsendum

"Þetta hefur ekkert með stjórnmálaflokka að gera,“ segir Ásta Hafberg, en hún talar ...  

Meira
Innlent 23. maí. 2012 21:15

Nærmynd af Ara Trausta

Vísindamanninum, rithöfundinum og forsetaframbjóðandanum Ara Trausta Guðmundssyni er lýst ...  

Meira
  • Fréttir
  • Sport
  • Viðskipti
  • Lífið

Fréttir eftir mánuði

Þú ert hér: Forsíða / Fréttir / Innlent / Fjarstæðukenndar skýringar á Ironmaster myndbandi