Innlent

Fjármögnun háskóla gríðarlega mikilvæg

Þórgnýr Einar Albertsson skrifar
Hermundur Sigmundsson, prófessor
Hermundur Sigmundsson, prófessor vísir/Pjetur
„Það er gríðarlega mikilvægt fyrir íslenskt samfélag að háskólarnir séu vel fjármagnaðir,“ segir Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands.

Samkvæmt nýrri skýrslu OECD ver hið opinbera minnstum fjármunum á hvern ársnema á háskólastigi á Íslandi samanborið við hin OECD-löndin. Frá árinu 2010 hefur stöðugt dregið úr fjármögnun á meðan nemendum hefur fjölgað.

Ísland ver um 1.241.233 krónum í hvern ársnema. Meðaltal OECD-ríkja er hins vegar 1.989.256 krónur og þá verja nágrannar okkar í Noregi 2.649.517 í hvern ársnema.

„Þetta er það sem við höfum verið að benda á á undanförnum árum. Við erum að fjarlægjast hin Norðurlöndin í fjárframlögum fyrir hvern ársnema. Við stefnum að því að ná meðaltali þeirra árið 2020,“ segir Jón Atli enn fremur. Hann bendir á að háskólinn sé tilbúinn að ræða málin við alla hlutaðeigandi.

Jón Atli Benediktsson , rektor HÍvísir/pjetur
Jón Atli segir ekki ganga til lengdar að hafa kerfið svo illa fjármagnað en segir Háskóla Íslands þó mjög vel rekinn.

Eitt helsta vandamálið segir hann vera fjölda nemenda á hvern kennara. Nemendahópar eru of stórir að hans mati og veldur það meiri álagi á hvern kennara.

Þá segir hann einnig nauðsynlegt að endurskoða reiknilíkan menntamálaráðuneytis sem sker úr um hve mikið er greitt með hverjum nemenda fyrir hverja grein. „Lægsti flokkurinn er til dæmis allt of lágur.“

Hermundur Sigmundsson, prófessor við norska tækni- og vísindaháskólann og Háskólann í Reykjavík, segir helsta vandann þann að háskólaumhverfið á Íslandi sé of stórt og segir hann þurfa að fækka háskólum.

„Við verðum að auka gæði háskólaumhverfisins því gæði eru lykilatriði í öllu skólastarfi. Með því að auka gæðin er möguleiki á að skapa ný atvinnutækifæri og efla nýsköpun,“ segir Hermundur.

„Við þurfum að skoða háskólaumhverfið allt og efla það svo það sé ekki fjárhagslega svelt. En ég tel fyrst og fremst að við þurfum að bæta gæði kennslu og rannsókna,“ segir hann enn fremur.

Hermundur segir of marga kennara á hvern nemanda í sumum deildum en stöðuna öfuga í öðrum. Hann segir þetta þurfa að laga.

„Þetta er mjög flókið en það þarf að endurskoða allt háskólaumhverfið.“

Jón Atli og Hermundur taka báðir til máls á 75 ára afmælisþingi Rannís í dag klukkan 14.00 á Hilton Reykjavík og tala um menntamál. Á meðal annarra sem taka til máls eru Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra og Illugi Gunnarsson menntamálaráðherra.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×