Viðskipti innlent

Fjármálastöðugleikaráð hefur störf

Stefán Árni Pálsson skrifar
Fjármálaráðuneytið.
Fjármálaráðuneytið.
Fyrsti fundur fjármálastöðugleikaráðs fór fram í fjármála- og efnahagsráðuneytinu í gær.

Fjármálastöðugleikaráð er formlegur samstarfsvettvangur stjórnvalda um fjármálastöðugleika eftir því sem kemur fram í tilkynningu frá Fjármálaráðuneytinu.

Ráðið er vettvangur samráðs, upplýsingaskipta og stefnumótunar vegna fjármálastöðugleika og samhæfir viðbúnað opinberra aðila við fjármálakreppu.

Í fjármálastöðugleikaráði sitja fjármála- og efnahagsráðherra, sem er formaður ráðsins, seðlabankastjóri og forstjóri Fjármálaeftirlitsins.

Helstu verkefni fjármálastöðugleikaráðs eru eftirfarandi:

- að móta opinbera stefnu um fjármálastöðugleika.

- að meta efnahagslegt ójafnvægi, áhættu í fjármálakerfinu, óæskilega hvata og aðrar aðstæður sem eru líklegar til að ógna fjármálastöðugleika.

- að skilgreina þær aðgerðir, aðrar en beitingu stjórntækja Seðlabanka Íslands í peningamálum, sem eru taldar nauðsynlegar á hverjum tíma til að hafa áhrif á fjármálakerfið í þeim tilgangi að efla og varðveita fjármálastöðugleika.

- að staðfesta skilgreiningar á kerfislega mikilvægum eftirlitsskyldum aðilum, innviðum og mörkuðum sem eru þess eðlis að starfsemi þeirra getur haft áhrif á fjármálastöðugleika.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×