Innlent

Fjármálaráðherra segir þingmenn vera með dylgjur og blaður

Heimir Már Pétursson skrifar
Fjármálaráðherra sagði þingmenn ýmist vera með dylgjur eða innihaldslaust blaður í umræðum um Arion banka á Alþingi í dag. Hagsmunir ríkisins væru tryggðir ykist verðmæti bankans eftir sölu á hlut ríkisins í honum.

Oddný G. Harðardóttir þingflokksformaður Samfylkingarinnar og Birgir Þórarinsson þingmaður Miðflokksins spurði bæði fjármálaráðherra út í málefni Arion banka á Alþingi í dag en þó á ólíkum forsendum.

Oddný sagði Benedikt Gíslason aðstoðarmann Bjarna Benediktsson í fjármálaráðuneytinu við samningu stöðugleikaskilyrðanna fyrir bankana, hafa haft aðgang að trúnaðarupplýsingum um hag íslenska ríkisins og markmið þess í viðræðum við kröfuhafa.

„Það er því hneyksli að þessi sami aðstoðarmaður vinni nú fyrir Kaupþing og stærstu eigendur Arion banka. Þá sem stöðugleikaskilyrðin voru sniðin að. Það sem meira er, aðstoðarmaðurinn hóf störf fyrir þá aðila aðeins nokkrum vikum eftir að hann hætti störfum sem aðstoðarmaður hæstvirts ráðherra,“ sagði Oddný og spurði hvort ráðherra teldi þetta eðlilegt.

„Hér er verið að dylgja um það að hér sé verið að fara illa með trúnaðarupplýsingar sem mönnum hafi verið treyst fyrir. Ég verð bara að biðja háttvirtan þingmann að færa einhver rök fyrir máli sínu ef svo er.  Það sem var verkefni umrædds starfsmanns eru opinberar upplýsingar í dag,“ sagði Bjarni.

Þingmenn Miðflokksins telja að erlendir vogunarsjóðir sem eiga meirihluta í Arion banka beiti skipulagðri leikfléttu gagnvart íslenskum stjórnvöldum með kaupum sjóðanna á hlut ríkisins í Arion. Bankinn sé mun verðmætari en það verð sem ríkið fái fyrir 13 prósenta hlut sinn í Arion gefi til kynna.

„Þegar búið er að kaupa ríkið út geta vogunarsjóðirnir gert það sem þeir vilja við eigur bankans. Hlutur þeirra stækkar og verður verðmætari,“ sagði Birgir Þórarinsson.

Fjármálaráðherra sagði ríkið ekki aðeins fá greitt fyrir hlut sinn í bankanum, samkvæmt ófrávíkjanlegum kauprétti hluthafanna, heldur stóran hlut af söluverði Kaupþings selji félagið eign sína í Arion síðar yfir matsverði.

„Yfirlýsingar Miðflokksins fyrir kosningar voru gjörsamlega innihaldslausar. Hugmyndin um að það væri hægt að afhenda íslenskum almenningi 1/3 af Arion banka, banka sem ríkið yfirhöfuð átti ekki og myndi þurfa að borga 60 til 70 milljarða til að eignast þann hlut, þær voru innistæðulaust blaður.,“ sagði Bjarni Benediktsson.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×