Fjármálafyrirtæki losað eignarhlut sinn í nærri 200 fyrirtækjum ingvar haraldsson skrifar 2. mars 2015 15:37 Höfuðstöðvar Fjármálaeftirlitsins eru við Höfðatorg.
Viðskiptabankar, sparisjóðir og lánafyrirtæki hafa losað eignarhlut sinn í 185 fyrirtækjum í óskyldum rekstri frá miðju árinu 2011. Á síðustu 18 mánuðum hefur eignarhlutum fjármálafyrirtækja fækkað úr 72 í 41 eða um 61 prósent. Þetta kemur fram í gögnum frá Fjármálaeftirlitinu (FME). Fjármálafyrirtæki mega samkvæmt lögum einungis eiga tímabundið í fyrirtækjum sem stunda starfsemi í óskyldum rekstri og þá í þeim tilgangi að ljúka viðskiptum eða til að endurskipuleggja starfsemi þeirra. Fjármálafyrirtæki þurfa að senda inn rökstudda umsókn til FME stefni það á að halda eignarhlut í félagi í óskyldum rekstri lengur en 12 mánuði. FME telur fyrirtækin hafa náð góðum árangri í að fækka eignarhlutum í fyrirtækjum í óskildum rekstri og bendir á að ekkert af félögunum 41 sem fjármálafyrirtæki eiga enn séu í endurskipulagningarferli.Eignarhlutum fjármálafyrirtækja í félögum í óskyldum rekstri hefur fækkað verulega að undanförnu.mynd/fmeAf 41 félagi eiga fjármálafyrirtæki yfir 40% hlut í 21 félag félagi, í 15 félögum er eignarhaldið á bilinu 20-40% og í 5 félögum er eignarhaldið 10-20%. Átta af félögunum eru í fasteignatengdri starfsemi. „Nokkuð er um að slík félög haldi aðeins á einni fasteign, lóðum eða að um sé að ræða þróunarverkefni sem hafa ekki hafist af alvöru,“segir í greiningu fjármáleftirlitsins. Félög með starfsemi erlendis eru alls 10 en þau eru nær eingöngu með starfsemi eða eignir í sölumeðferð erlendis. 10 félög eru tóm eða í slitaferli en undir þann flokk falla eignir þar sem unnið er að slitum á félagi án þess að um eiginlega starfsemi sé að ræða eða þegar félagið hefur verið tæmt. Þá eru 9 rekstarfélög í eiga fjármálafyrirtækja með starfsemi á Íslandi og eru að einhverju eða að fullu leyti í samkeppni á íslenskum markaði. Eignarhlutur fjármálafyrirtækja í þessum flokki er að meðaltali 42%. Félög sem flokkast undir að vera sjóðir eru tvö en þeir hafa afmarkaðan líftíma og voru stofnaðir áður en 12 mánaða takmarkandi ákvæði var sett í lög um fjármálafyrirtæki.Skipting eigna fjármálafyrirtækja í óskyldum rekstri eftir tegund þeirra.vísir/fme
Mest lesið Hvað er opið um páskana? Neytendur Páskaeggin frá Nóa Síríus vinsælust Neytendur Stjörnugrís sektaður fyrir íslenskan fána Neytendur Rússar flytja inn eldsneyti eftir drónaárásir Viðskipti erlent Forstjóri Boeing lætur af störfum fyrir árslok Viðskipti erlent Tuttugu milljóna hámark sett á einstaklinga Viðskipti innlent Trump græddi milljarða dala í dag Viðskipti erlent Súkkulaði frá Nóa hækkar mest á meðan Freyja lækkar Neytendur Bónus, Extra og Heimkaup oftast með lægsta verðið á páskaeggjum Neytendur Hefð fyrir sumargjöf í Íslandsbanka Viðskipti innlent Fleiri fréttir Tuttugu milljóna hámark sett á einstaklinga Lok, lok og læs hjá Gló Hefð fyrir sumargjöf í Íslandsbanka Hundrað þúsund kall á haus Ísland ekki nógu spennandi áfangastaður fyrir Ryanair Yfirmaður hjá Alvotech fékk 300 milljóna kaupauka Ráðinn nýr lögfræðingur hjá ÖBÍ Húsnæðisliðnum um að kenna en von á breytingum Fundar með Bankasýslunni í dag Bankasýslan þögul sem gröfin Festi vill sættast við Samkeppniseftirlitið Verðbólga eykst á ný Deildar meiningar um hvað sagt var í símtali Segir skilið við SVÞ eftir sextán ár í starfi Ætlar ekki að tjá sig fyrir aðalfund Landsbankans Skál flytur úr mathöllinni Fyrirhuguð löggjöf muni ekki laga leigumarkað í lamasessi Telja sig hafa gert nóg til að upplýsa Bankasýsluna Bankaráð Landsbankans svarar fyrir sig Opna nýja frjósemismiðstöð á haustmánuðum Fjárfestar líta í síauknum mæli til mikilvægis kynjajafnréttis Leiðinlegt með loðnuna en svona er þetta bara Pizzan reynir að eigna sér Megaviku Domino's Ráðinn framkvæmdastjóri úr hópi 27 umsækjenda Jón hættir sem stjórnarformaður Sýnar Eydís og Þorvaldur til Genís Setur 100 milljónir í að leiðrétta erlendan fréttaflutning um eldgosin Bein útsending: Orkuöryggi – Hverju getum við áorkað? Hitnar í fasteignamarkaði vegna íbúðakaupa Grindvíkinga Forsprakki verkefnisins „Stækkaðu framtíðina“ heimsótti Landakotsskóla Sjá meira