Fjárlaganefnd tekur LbhÍ til umfjöllunar Óli Kristján Ármannsson skrifar 24. apríl 2014 07:00 LbhÍ á Hvanneyri. Haraldur Benediktsson, þingmaður Norðvesturkjördæmis, segir LbhÍ burðast með óhagkvæmt húsnæði sem hann þurfi að leigja af ríkinu. Þar sé eitt svið þar sem hjálpa megi skólanum. Fréttablaðið/GVA
Fulltrúar menntamálaráðuneytisins og Landbúnaðarháskólans á Hvanneyri (LbhÍ) mæta til fundar við fjárlaganefnd Alþingis öðrum hvorum megin við næstu mánaðamót, að sögn Haraldar Benediktssonar, þingmanns Sjálfstæðisflokks í Norðvesturkjördæmi. Haraldur, sem sæti á í nefndinni, vonast til að þá fáist skýrari mynd af stöðu skólans. Haraldur segist frá upphafi hafa talað fyrir því að skoðaðar yrðu fleiri leiðir en sameining LbhÍ við Háskóla Íslands. „Þar voru boðnir fram mjög miklir peningar í uppbyggingu og í aukin framlög og þá vakna spurningar um hvaða greiningar lágu þar að baki, hvaða forgangsröðun var á þessum verkefnum og hvers vegna peningarnir hverfa ef hugmyndir ráðherrans ná ekki fram að ganga og þá snúið í þveröfuga átt og talað um niðurskurð,“ segir Haraldur og kveður sína skoðun að „mjög illa“ hafi verið haldið á málinu, og það þótt í hlut eigi flokksbróðir hans, Illugi Gunnarsson menntamálaráðherra.Haraldur BenediktssonAfstaða þeirra þingmanna kjördæmisins sem látið hafa sig málefni LbhÍ varða sé hins vegar enn skýr og í þá átt að verja skólann í kjördæminu. Snýst um það, á mannamáli. „Ég hef ekki heyrt á norðvesturþingmönnum nein mismunandi sjónarmið í þessum efnum.“ Umræðan um sameiningu við Háskóla Íslands gjaldi fyrir það að stjórnvöld hafi áður komið fram með fyrirætlanir á fjárframlögum um uppbyggingu á landsbyggðinni. „Og svo sitja landsbyggðarmenn ævinlega uppi með svartapétur þegar þarf að fara skera niður.“ Ljóst er að mati Haraldar að áætlanir um sameiningu við HÍ hafi ekki miðað að aukinni hagræðingu því henni hefði fylgt stóraukinn kostnaður,svo sem í hærri launum til prófessora og kennaraliðs við LbhÍ. Fjárhagsáætlun sem LbhÍ skilaði til menntamálaráðuneytisins um síðustu mánaðamót og gerir ráð fyrir fækkun um 15 stöðugildi hefur enn ekki fengið uppáskrift í ráðuneytinu. Þrátt fyrir ítrekaða eftirgrennslan hafa ekki borist svör frá menntamálaráðuneytinu um stöðu málsins.
Mest lesið Getur ekki lagt fram trygginguna og biðlar til dómstóla um miskunn Erlent Krafði Ómar um endurgreiðslu eftir að hafa lesið um hann í blöðunum Innlent „Við verðum að bregðast við þegar glugginn er opinn“ Innlent Vistmaður á fangelsinu Sogni fannst látinn Innlent „Mannkynið mun ekki lifa framhald af Oppenheimer“ Erlent „Þetta er að verða komið gott“ Innlent Óforsvaranlegt að 2,1 milljarði verði varið til listaverkakaupa fyrir nýja Landspítalann Innlent Stöðug virkni í nótt Innlent Hjónum fjölgar hjá umboðsmanni skuldara Innlent Opna Grindavík aftur Innlent Fleiri fréttir Bílvelta á Kjalarnesi Óforsvaranlegt að 2,1 milljarði verði varið til listaverkakaupa fyrir nýja Landspítalann Eldgosið toppar þrjú síðustu Gos við Grindavík og tekist á um TM Vistmaður á fangelsinu Sogni fannst látinn Heilsugæslan tekur alfarið við svörun í númerinu 1700 Krafði Ómar um endurgreiðslu eftir að hafa lesið um hann í blöðunum Opna Grindavík aftur Hjónum fjölgar hjá umboðsmanni skuldara Bein útsending: Málþing um framtíð rammaáætlunar Stöðug virkni í nótt „Við verðum að bregðast við þegar glugginn er opinn“ „Þetta er að verða komið gott“ Bankasýslan kom af fjöllum þegar tilkynnt var um kaupin Lýsir yfir vonbrigðum og krefst frestunar aðalfundar Árekstur við Kaplakrika Eldgosið hagi sér öðruvísi og gæti varað lengur Jakob Reynir Aftur reynir aftur Bankastjóri segir það hennar hlutverk að reka Landsbankann Enn mikið sjónarspil á gosstöðvunum Tveggja ára fangelsi fyrir hnífaárás vegna lélegs kókaíns Hvorki sakborningur né fórnarlamb kannast við skotárásina Kvöldfréttir Stöðvar 2 Stefán Ingimar neitar að koma til landsins Virkni gossins enn stöðug og hætta enn talin mikil Tekur ekki þátt í að selja hlut í Landsbankanum Endurskoða aðgangstakmarkanir á morgun Meðmælabréf kennaranna ekki nóg fyrir skólastjórann Lítil stemning fyrir rafrænni undirritun Ríkið reynt að hafa þinglýstar jarðir af bændum með valdi Sjá meira
Óforsvaranlegt að 2,1 milljarði verði varið til listaverkakaupa fyrir nýja Landspítalann Innlent
Óforsvaranlegt að 2,1 milljarði verði varið til listaverkakaupa fyrir nýja Landspítalann Innlent