Innlent

Fjárlagafrumvarpið hefur verið samþykkt

Bjarki Ármannsson skrifar
Síðasti fundur fyrir jólaleyfi Alþingis stendur nú yfir.
Síðasti fundur fyrir jólaleyfi Alþingis stendur nú yfir. Vísir/GVA
Fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar fyrir næsta ár var samþykkt á Alþingi á tíunda tímanum í kvöld. Stjórnarandstaðan lýsti yfir miklum áhyggjum af ýmsum þáttum þess, meðal annars hvað varðar vinnumarkaðinn og málefni Ríkisútvarpsins, en náði litlum breytingum fram.

Þingfundur hófst að nýju stuttu fyrir klukkan tíu en þar eru níu mál á dagskrá. Þetta er síðasti fundur fyrir jólaleyfi Alþingis.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×