Innlent

Fjárlagafrumvarpið boðar styrjaldarástand

Sveinn arnarsson skrifar
Fjárlagafrumvarpið mun að óbreyttu hafa gríðarlega mikil áhrif á starfsemi Landspítalans að mati stjórnenda spítalans. Mælt var fyrir frumvarpinu á þingi í gær.
Fjárlagafrumvarpið mun að óbreyttu hafa gríðarlega mikil áhrif á starfsemi Landspítalans að mati stjórnenda spítalans. Mælt var fyrir frumvarpinu á þingi í gær. vísir/vilhelm
Verði frumvarp til fjárlaga samþykkt frá Alþingi óbreytt mun það þýða að Landspítalinn þurfi að skera niður um 5,3 milljarða króna til að mæta því. „Þessi fjárlög eru hamfarir fyrir okkur, það er ekkert öðruvísi,“ segir Páll Matthíasson, forstjóri LSH.

Í fjárlagafrumvarpinu er gert ráð fyrir að fjórum milljörðum verði bætt við hjá Landspítalanum. María Heimisdóttir, læknir og framkvæmdastjóri fjármálasviðs, sagði í Fréttablaðinu í gær að rúmir þrír milljarðar færu í hækkun launa og því yrðu um 800 milljónir eftir inn í reksturinn.

Páll Matthíasson
Páll segir síðan meira koma til sem breyti stöðunni umtalsvert. „Þegar tekinn er til greina halli á þessu ári og því næsta, vangoldnar launahækkanir lækna og eftirspurnaraukning sem er ein og sér um 2,1 milljarður króna, sjáum við að við þurfum að skera niður um 5,3 milljarða króna á næsta ári,“ segir Páll.

„Það eru einfaldlega um tíu prósent af rekstri stofnunarinnar. Þetta þýðir styrjaldarástand og fjöldauppsagnir og að við höggvum niður þjónustu. Það er síðan þeirra sem lögðu frumvarpið fram að taka afstöðu til þeirra.“

Umræðan í þingsal
Um 5.200 manns vinna á Landspítalanum. Stofnunin er langstærsti opinberi vinnustaðurinn og slaga fjárframlög til hans á næsta ári í sextíu milljarða króna. Ef til uppsagna kemur á stofnuninni gæti það haft áhrif á fjölda manns.

Að mati Páls er hér um að ræða gífurleg vonbirgði. Spítalinn hafi talað skýrt um að þörfin væri um 12 milljarðar króna. Með þessum tölum sé ekki hægt að fara í flatan niðurskurð. Nú þyrfti að fara í forgangsröðun og hætta að veita einhverja þjónustu sem nú er fyrir hendi innan spítalans.

„Ef við skoðum nýlega OECD-skýrslu erum við í neðsta sæti meðal Evrópulanda þegar innviðauppbygging er skoðuð. McKinsey-skýrslan sýndi okkur að við erum að reka spítala með miklu minna fjármagn en löndin í kringum okkur. Allt helst þetta í hendur og nú erum við að sjá niðurskurð eins og hann gerðist verstur eftir kreppuna 2008,“ segir Páll. 

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu




Fleiri fréttir

Sjá meira


×