Innlent

Fjár­kúgunar­málið: Beðið eftir niður­stöðum líf­sýna­rann­sóknar

Aðalsteinn Kjartansson skrifar
Óljóst hvenær rannsóknum lögreglu á fjárkúgunarmálum systranna Hlínar Einarsdóttur og Malínar Brand lýkur.
Óljóst hvenær rannsóknum lögreglu á fjárkúgunarmálum systranna Hlínar Einarsdóttur og Malínar Brand lýkur. Vísir
Beðið er eftir niðurstöðum úr rannsókn á lífsýnum í tengslum við rannsókn á tilraun til fjárkúgunar á hendur forsætisráðherra. Rannsókn málsins stendur því enn yfir. Málið hefur verið til rannsóknar undanfarnar vikur en ekki liggur fyrir hvenær rannsókn líkur og málið verði sent ríkissaksóknara til umfjöllunar.



Systurnar Hlín Einarsdóttir og Malín Brand hafa játað að komu sínu að málinu en þær sendu Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni forsætisráðherra bréf á heimili hans þar sem farið var fram á átta milljónir króna ella yrðu upplýsingar um meinta aðkomu hans á lánafyrirgreiðslu frá MP banka til Pressunnar, fjölmiðlafyrirtækis Björns Inga Hrafnssonar, gerðar opinberar. 



Friðrik Smári Björgvinsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, segir að rannsókn á annarri fjárkúgunarkæru standi líka enn yfir. 



Þar eru systurnar kærðar fyrir að kúga 750 þúsund krónur úr manni ella yrði hann kærður til lögreglu fyrir að nauðga annari þeirra. Maðurinn greiddi systrunum fjármunina en lagði svo fram kæru á hendur þeim eftir að fjölmiðlar fjölluðu um fjárkúgunarmál forsætisráðherra. 



Báðar hafa systurnar viðurkennt að hafa tekið við peningum frá manninum en fullyrt að um miskabætur hafi verið að ræða sem samið hafi verið um, enginn hafi verið kúgaður til greiðslu. 



Málin eru rannsökuð í sitt hvoru lagi en Friðrik Smári segir ekki útilokað einhver skörun verði á rannsóknunum tveimur.


Tengdar fréttir

Sérsveitin kölluð til þótt öryggi Sigmundar væri ekki ógnað

Sú staðreynd að fjárkúgunarkröfu var beint gegn forsætisráðherra og fjölskyldu hans hafði ekki áhrif á umfang aðgerðar lögreglu. "Þetta var tilraun til fjárkúgunar og viðbrögð í samræmi við það,“ segir Friðrik Smári Björgvinsson.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×