Innlent

Fjárhagsvandi veikir ímynd og samvinnu á Suðurnesjum

Svavar Hávarðsson skrifar
Gegndarlaust tal um vanda svæðisins gæti verið hluti vandans.
Gegndarlaust tal um vanda svæðisins gæti verið hluti vandans. fréttablaðið/stefán
„Sveitarfélögin eru í margvíslegu samstarfi og það kemur niður á Suðurnesjum í heild sinni hvernig staðan er þar. Í þessu felst einnig ímyndarvandi og þetta dregur úr þeim krafti sem þarf að einkenna samstarf sveitarfélaga,“ segir Magnús Stefánsson, bæjarstjóri í Garði, um ruðningsáhrif alvarlegrar fjárhagsstöðu Reykjanesbæjar á önnur sveitarfélög á Suðurnesjum.

Róbert Ragnarsson, bæjarstjóri Grindavíkurbæjar, er sammála því að fjárhagsvandi Reykjanesbæjar veiki allt svæðið. „Þegar það sveitarfélag sem hefur tvo þriðju af íbúafjölda svæðisins er í jafn veikri stöðu og Reykjanesbær núna þá hefur það áhrif á okkur hin. Það gerir okkur erfiðara fyrir, til dæmis í sameiginlega reknum stofnunum, að Reykjanesbær getur ekki beitt sér af fullum krafti,“ segir Róbert og nefnir sem dæmi allt frá sameiginlegri þjónustu við fatlaða til reksturs sorpeyðingarstöðvar.

Sigrún Árnadóttir, bæjarstjóri Sandgerðisbæjar, Róbert Ragnarsson, bæjarstjóri Grindavíkurbæjar og Magnús Stefánsson, bæjarstjóri í Garði.
Hvað varðar þingsályktunartillöguna sjálfa telur Róbert það góðra gjalda vert að ríkið noti sín tæki til að aðstoða svæði, og sveitarfélög. „Landshlutaáætlanirnar, sem voru skornar myndarlega niður, voru ákveðinn liður í því, en þegar vandamál koma upp í sveitarfélögunum úti á landi þá hafa menn áður sent sjúkrabíl að sunnan. Ég hef hins vegar ekki séð að mikið hafi komið út úr slíkri vinnu,“ segir Róbert.

Sigrún Árnadóttir, bæjarstjóri Sandgerðisbæjar, tekur í svipaðan streng og Magnús og Róbert, en segir hins vegar að þessi vandi sé ekki nýr af nálinni. Ekki megi gleyma því að þrátt fyrir athyglina á fjárhagsvanda Reykjanesbæjar séu mörg jákvæð teikn á lofti, og hennar tilfinning er að svæðið sé í vexti. Sigrún tekur hún undir þær hugmyndir sem þingsályktunartillagan gengur út á, þar séu sérstaklega nefnd vandamál sem taka verður á og eru eftirhreytur hrunsins sem hafi hitt Suðurnesin verst fyrir.

Magnús bendir á að uppbyggingaráform í Helguvík hafi notið allt of mikillar athygli undanfarin ár, og annað setið á hakanum á meðan. Hann telur gegndarlaust umtal um fjárhagsstöðu Reykjanesbæjar geta haft letjandi áhrif á þá sem gætu hugsað sér að setjast að á Suðurnesjum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×