Innlent

Fjárfesting í gagnaverum 20 milljarðar á 5 til 6 árum

Svavar Hávarðsson skrifar
Thor Um 80 alþjóðlegir aðilar nýttu sér þjónustu gagnavers Advania í Hafnarfirði á síðasta ári.
Thor Um 80 alþjóðlegir aðilar nýttu sér þjónustu gagnavers Advania í Hafnarfirði á síðasta ári.
tækniFjárfesting við uppbyggingu íslenska gagnaversiðnaðarins er í kringum 20 milljarðar króna á aðeins fimm til sex árum. Föst og afleidd störf eru þegar um 300 talsins.

Þetta kom fram í máli Eyjólfs M. Kristinssonar, formanns Samtaka íslenskra gagnavera (DCI), á vorfundi Landsnets fyrir skemmstu.

Eyjólfur fjallaði meðal annars um af hverju Ísland hentar vel til uppbyggingar gagnavera. Ekki síst er það náttúruleg kæling sem hefur bein áhrif á rekstrarkostnað fyrirtækjanna sem þurfa að kaupa minni orku til kælingar á vélbúnaði en víða annars staðar.

Tiltölulega lágt orkuverð spilar einnig inn í þessa mynd. Gagnaver á Íslandi nýta 20 megavött (MW) af orku og kaupa rafmagn fyrir um 1,4 milljarða króna árlega. Keypt bandvídd er fyrir 500 milljónir á ári.

Þótt greinin sé ung að árum þá eru þegar bein störf í gagnaverum á Íslandi í dag 70 til 100, en afleidd störf eru mun fleiri eða rúmlega 200 talsins.

Eyjólfur svaraði þeirri spurningu af hverju gagnaver á Íslandi eru ekki fleiri og stærri en raun ber vitni. Það sagði hann helst að rekja til þess að gagnasamband við Bandaríkin væri „ekki frábært“ en nefndi að við erfiðar aðstæður hefði greinin fengið mikla stoð frá fyrirtækjum á sviði gagnaflutninga- og fjarskiptasambanda við útlönd.

„Hins vegar þarf miklu meira til ef við ætlum að vera samkeppnishæf,“ sagði Eyjólfur sem varpaði fram þeirri spurningu hver aðkoma stjórnvalda gæti verið til að styðja við gagnaversiðnaðinn til framtíðar.

Hann nefndi að skattaumhverfi þyrfti að vera samkeppnishæft við helstu samkeppnislönd og að styðja þyrfti uppbyggingu innviða eins og raforku- og fjarskiptakerfis, eins menntunar sem nýtist greininni og mikilvægi lagalegrar verndar tjáningar- og upplýsingafrelsis.

„Við finnum það að þau lönd sem við erum helst í samkeppni við fá öflugan stuðning frá stjórnvöldum; eru með sterkar markaðsskrifstofur á bak við sig og þessi lönd hafa markað sér skýra stefnu um að ná árangri. Árangurinn hefur ekki líka ekki látið á sér standa,“ sagði Eyjólfur og nefndi Írland sem dæmi en einnig Finnland og Svíþjóð.

Hann sagði tækifærin án nokkurs vafa fyrir hendi enda væru tvö prósent allrar orku í Bandaríkjunum þegar nýtt til að reka gagnaver og aðrar tölur væru til marks um það að gagnaveraiðnaðurinn á heimsvísu yxi hraðar en menn gerðu sér almennt grein fyrir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×