Viðskipti innlent

Fjárfestar óttast verðbólgu í kjölfar kjarasamninga

ingvar haraldsson skrifar
Fjárfestar óttast hærri verðbólgu og því er aukin ásókn í verðtryggð skuldabréf í Kauphöll Íslands.
Fjárfestar óttast hærri verðbólgu og því er aukin ásókn í verðtryggð skuldabréf í Kauphöll Íslands. vísir/gva
Fjárfestar óttast að verðbólga muni aukast á næstunni vegna ólgunnar á vinnumarkaði og sækja þeir því í auknum mæli í verðtryggð skuldabréf. Þetta kemur fram í markaðspunkti Arion banka.

Verðtryggðra skuldabréf hefur skilað 6,4% ávöxtun það sem af er ári en óverðtryggð neikvæðri ávöxtun upp á -2,2%. „Verðlagning á skuldabréfum endurspeglar því vaxandi áhyggjur fjárfesta af verðbólgu sem gæti m.a. orsakast af því að launahækkanir verði umfram það svigrúm sem hagkerfið leyfir og að launakostnaði verði þrýst út í verðlag,“ segir í greiningu Arion banka.

Bent er á að ekki sé búið að semja og því gæti staðan breyst verði samið um minni launahækkanir en búist er við. „Viðbrögð á markaði benda engu að síður til þess að vænst er aukinni verðbólgu og að hún fari umfram þolmörk Seðlabankans sem muni bregðast við með hækkun vaxta.“

Staðan nú gæti orðið svipuð og árið 2011 en þá var samið um almenna launahækkun upp á 11,4% yfir þriggja ára tímabil. „Í kjölfarið hækkaði ársverðbólgan úr 1,8% í janúar 2011 í 6,5% ári seinna. Árshækkun launavísitölunnar fór úr 4,4% í ársbyrjun 2011 í 9,1% ári seinna og Seðlabankinn hóf hækkun stýrivaxta í ágúst 2011,“ segir í greiningunni. Bent er á að Seðlabankinn muni líklega bregðast enn skjótar við launahækkunum nú en árið 2011 og leyfi raunvöxtum ekki að lækka að neinu ráði því framleiðsluslakinn sé að hverfa úr hagkerfinu, atvinnuleysi að minna og eftirspurnin sé meiri nú en árið 2011.


Tengdar fréttir

Skuldir heimila gætu vaxið verulega með afnámi hafta

Stjórnvöld hafa ekki sinnt því nægilega að undirbúa þjóðina undir hvað tekur við eftir afnám gjaldeyrishafta, að mati hagfræðings við HÍ. Hagfræðingar sammála um að umræðan þurfi að fara fram fyrir opnum tjöldum.

Ásókn í verðtryggt vegna kjaradeilna

Deilur á vinnumarkaði hafa valdið því að fjárfestar sækja í auknum mæli í verðtryggð skuldabréf. Markaðsaðilar óttast hækkandi verðbólgu. Þróunin gæti valdið lækkun vaxta verðtryggðra lána.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×