Viðskipti innlent

Fjárfestar leggja fjóra milljarða í CCP

ingvar haraldsson skrifar
Hlutafjáraukninguna á að nýta í þróun á tölvuleikjum á sviði sýndarveruleika.
Hlutafjáraukninguna á að nýta í þróun á tölvuleikjum á sviði sýndarveruleika. ccp
Leggja á tæplega fjóra milljarða króna, þrjátíu milljónir dollara, af nýju hlutafé í tölvuleikjafyrirtækið CCP. Þetta var tilkynnt á hluthafafundi CCP síðdegis í dag.

Að baki fjárfestingunni standa einn stærsti framtakssjóður heims, New Enterprise Associates (NEA), sem leiðir fjárfestinguna, og Novator Partners, fjárfestingafélag Björgólfs Thors Björgólfssonar.

Hyggja á sókn í sýndarveruleikaheimum

Fjárfestingin á að efla starfsemi félagsins á sýndarveruleika sem hyggur á stórsókn á því sviði. Á næstu átta mánuðum hyggst félagið gefa út tvo slíka leiki. Leikurinn Gunjack sem hefur verið í þróun á starfsstöð fyrirtækisins í Shanghai mun koma út fyrir Gear VR búnað Samsung þann 20. nóvember. Þá mun EVE Valkyrie koma út næsta vor fyrir Oculus Rift sýndarveruleikagleraugun og fyrir PlayStation VR á fyrri helming næsta árs.

Hilmar Veigar Pétursson, framkvæmdastjóri CCP, á von á því að félagið skili hagnaði á þessu ári.vísir/ernir
„Það er okkar trú að sýndarveruleiki muni ekki aðeins umbylta tölvuleikjum og gerð þeirra, heldur tækniiðnaðinum í heild sinni. Við vorum með í þessari þróun frá byrjun, og þessi fjárfesting gerir okkur kleift að viðhalda forskoti CCP á þessu sviði,“ segir Hilmar Veigar Pétursson framkvæmdastjóri CCP.

Eftir hlutafjáraukninguna á CCP um 7,5 milljarða í sjóðum til að styðja við ný verkefni og vöxt félagsins.



Búast við að skila hagnaði á árinu

Hilmar Veigar býst við að félagið skili hagnaði á þessu ári eftir tæplega níu milljarða tap í fyrra. Tapið skýriðist að stórum hluta af afskriftum óefnislegra eigna, sérstaklega ákvörðun félagsins um að hætta þróun leiksins World of Darkness sem hafði verið í þróun frá árinu 2006.

„Við vorum búin að koma rekstrinum þannig að við vorum í fínum hagnaði,“ segir Hilmar.



NEA mun eiga fulltrúa í stjórn

Samhliða hlutafjáraukningunni mun Harry Weller, einn af stjórnendum NEA, taka sæti í stjórn fyrirtækisins og annar fulltrúi NEA, Andrew Schoen, verða varamaður í stjórn. Weller segir félagið hafa fylgst með starfsemi CCP um nokkurt skeið. „Reynsla fyrirtækisins af útgáfu EVE Online og brautryðjendastarf þess á sviði sýndarveruleika hefur komið fyrirtækinu í fremstu röð á þessum vettvangi, og við viljum vera samstarfsaðilar þess í enn frekari landvinningum á þessu sviði,” segir Weller í tilkynningu.

NEA er risavaxinn að stærð, eignir hans eru metnar á rúma 17 milljarða bandaríkjadala, ríflega 2.200 milljarðar íslenskra króna. Sjóðurinn var stofnaður árið 1977 og hefur fjárfest í um 650 fyrirtækjum í sex heimsálfum, meðal annars í hátæknifyrirtækjum og heilsugæslu. 



Ítarlegt viðtal við Hilmar Veigar Pétursson, forstjóra CCP, mun birtast í Fréttablaðinu og Vísi á morgun.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×