Viðskipti erlent

Fjárfesta fyrir 600 milljónir í snjallhring

Þórgnýr Einar Albertsson skrifar
Hringurinn frá Oura Ring.
Hringurinn frá Oura Ring. Nordicphotos/AFP
Finnska sprotafyrirtækið Oura Ring aflaði um sex hundruð milljóna króna í fyrstu fjármögnunarlotu fyrirtækisins. Hyggst fyrirtækið framleiða snjallhring sem fylgist með líkamsstarfsemi þess sem ber hringinn.

Á meðal fjársterkra aðila sem fjárfestu í fyrirtækinu eru vísindamenn við MIT, stofnverkfræðingur Skype og stofnandi skráaskiptaforritsins Kazaa.

Hringurinn er kominn í almenna sölu en fjármagnið á að nýtast til að hjálpa til við framleiðslu og frekari þróun Oura-hringsins. Um sjötíu prósent allra seldra eintaka hingað til hafa verið seld í Bandaríkjunum.

Hringurinn virkar þannig að hann er tengdur með Bluetooth við snjallsíma þess er ber hringinn. Í snjallsímann verður síðan að sækja þar til gert forrit svo hægt sé að skoða upplýsingarnar sem hringurinn aflar.

Þar má til dæmis nefna hjartslátt, andardrátt, svefn undanfarinna nátta auk annarra þátta.

Út frá þessum upplýsingum mælir hringurinn síðan með líkamsrækt við hæfi fyrir notandann. Segir búnaðurinn notandanum er hann vaknar hvort hann sé úthvíldur eður ei. Ef hann er úthvíldur mælir hringurinn með mikilli áreynslu þann daginn.

Í samtali við fréttasíðuna Tech­crunch segir forstjórinn, Petteri Lahtela, að næstu skref í þróun hringsins verði stigin í samráði við listamenn og tískuhönnuði. Ljóst er því að áhersla verður lögð á fegurð hringsins á næstunni.

Á Techcrunch er sömuleiðis greint frá því að hringurinn eigi auðvelt með að safna upplýsingunum þar sem merki úr æðum í fingrum séu sterkari en úr æðum á úlnlið. Þaðan fá snjallúr sín merki.

Oura er hins vegar ekki eina fyrirtækið sem framleiðir snjallhringa en það gerir Ringly sömuleiðis. Hringar Ringly gegna sama hlutverki og Oura, það er að miðla upplýsingum um ástand líkamans í snjallsíma notandans. 

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu






Fleiri fréttir

Sjá meira


×