Innlent

Fjáraukalög úr nefnd í dag

Sveinn Arnarsson skrifar
Vigdís Hauksdóttir, formaður fjárlaganefndar
Vigdís Hauksdóttir, formaður fjárlaganefndar

Breytingatillögur við fjáraukalög fjármálaráðherra verða afgreiddar úr fjárlaganefnd í dag. Vigdís Hauksdóttir, formaður nefndarinnar, segist eiga fastlega von á að klára verkið, með brýnum tillögum, á fjárlagafundi í dag.

„Ég er ánægð með hvernig þetta lítur út,“ segir hún. Einnig munu breytingatillögur eftir aðra umræðu fjárlaga næsta árs vera langt komnar og verða að öllum líkindum kláraðar á fundi nefndarinnar næsta miðvikudag. Samkvæmt heimildum blaðsins liggur fyrir að í breytingatillögum fjáraukalaga verði meðal annars 370 milljónum varið aukalega til þjóðkirkjunnar á þessu ári.

Vigdís segir allar þær breytinga­tillögur sem samþykktar séu vera til að styrkja grunnstoðir samfélagsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×