Lífið

Fjallið fleygði þvottavélum hjá Guinness World Records

Stefán Árni Pálsson skrifar
Hörð keppni
Hörð keppni
Kraftakarlinn Hafthór Júlíus Björnsson, betur þekktur sem Fjallið, var mættur í myndver hjá Heimsmetabók Guinness á dögunum og keppti í þvottavélakasti.

Markmiðið var að slá heimsmet í þvottavélakasti og gekk það eftir að þessu sinni. Hafþór keppti á móti Zydrunas Savickas, fyrrverandi sterkasti maður heims. Í dag er Bandaríkjamaðurinn Brian Shaw sá sterkarsti. 

Savickas kastaði vélinni 4,13 metra og hér að neðan má sjá hvort Hafþór hafi náð að negla vélinni enn lengra.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×