Bíó og sjónvarp

Fjallar að mestu um bræðrasvik

Guðrún Jóna Stefánsdóttir skrifar
Tökur á kvikmyndinni Mihkel hófust á mánudaginn og munu standa yfir fram á næsta vor. Leikstjóri myndarinnar er Ari Alexander Ergis Magnússon og Truenorth framleiðir myndina.
Tökur á kvikmyndinni Mihkel hófust á mánudaginn og munu standa yfir fram á næsta vor. Leikstjóri myndarinnar er Ari Alexander Ergis Magnússon og Truenorth framleiðir myndina. Vísir/Anton
„Hugmyndin kviknaði fyrst árið 2004 þegar ég var staddur í viðtali hjá Íslandi í dag ásamt Sigurjóni Sighvatssyni, við vorum nýkomnir heim frá New York, þar sem við vorum að mynda Björk og Sigur Rós á tónleikum, og vorum sem sagt mættir í viðtal vegna þess. Þegar við erum staddir í biðherbergi niðri á Stöð 2, áður en viðtalið fór fram, situr þar Jónas Ingi Ragnarsson, einn sakborningana í líkfundarmálinu svokallaða, þegar lík hins litháíska Vaidas Jucevisius fannst í höfninni í Neskaupstað 11. febrúar árið 2004 með fíkniefni innvortis.

Hann var nýkominn út úr fangelsi á þessum tíma og fór að spjalla við okkur um sín mál, það sem mér fannst mjög áhugavert í frásögn hans var að einn aðilinn í málinu flýr heim til mömmu sinnar í atburðarásinni. Það var þá sem áhugi minn kviknaði fyrir gerð kvikmyndarinnar Mihkel,“ segir Ari Alexander Ergis Magnússon, handritshöfundur og leikstjóri, en Mihkel­ verður frumsýnd haustið 2017.

Ari hefur mikinn áhuga á þessum heimi og segir kvikmyndina Kristjana F. sem byggð er á hinni heimsþekktu bók Dýragarðsbörnin hafa haft mikil áhrif á sig þegar hann var ungur.

„Þetta greip mig rosalega, ég fékk samúð með þessum einstaklingi sem flúði til móður sinnar, og vildi fjalla um söguna út frá mannlega þættinum, það er að segja að skoða þetta út frá heildinni, þetta var auðvita bara eitt af mörgum tilfellum sem hafa átt sér stað hér á landi. Þetta gerist, og er oftar en ekki mannlegur harmleikur,“ segir Ari.

Frá tökustað.Vísir/Anton
Myndin er nútímasaga sem snýst um hörmuleg örlög manns sem var raunverulega til. Sagan fjallar um Mihkel og Veru, kærustu hans, sem dreymir um að flytja frá Eistlandi til Íslands. Óvæntir atburðir gerast sem hafa afdrifaríkar afleiðingar og enda með því að Mihkel er svikinn af sínum besta og elsta vini.

„Ég er alls ekki að elta atburðinn sjálfan hvað varðar líkfundarmálið. Heldur fjallar myndin sjálf mikið um bræðrasvik. Hvernig þú getur staðið uppi sem maður, eftir að þú hefur svikið þinn besta vin. Ég er ekki að mata ákveðna hluti ofan í áhorfandann, heldur meira að velta upp spurningum. Mihkel og æskuvinur hans Igor eru frá litlu þorpi í Eistlandi og myndin sjálf er byggð á þeirra sögu.

Myndin hefst í Eistlandi þegar Mihkel og Igor eru litlir strákar. Með hlutverk þeirra fara eistnesku leikararnir Paaru Oja og Kasper Velberg, þeir hafa báðir mikla reynslu sem leikarar og hafa unnið til fjölda verðlauna í kvikmyndabransanum í Eistlandi.

„Þeir eru einar skærustu stjörnur í leiklistarheimi Eistlands, báðir alveg frábærir leikarar,“ segir hann.

Ferli kvikmyndarinnar hefur tekið óralangan tíma og fjöldi aðila komið að myndinni. Árið 2008 fékkst styrkur frá Media, Evrópusjóði kvikmynda, og allt leit út fyrir að tökur gætu hafist.

Áhugi Ara á að kvikmynda líkfundamálið kviknaði í biðherbergi á Stöð 2 árið 2004.Vísir/Anton
„Svo fór því miður ekki, efnahagshrunið hafði það mikil áhrif að ekki var hægt að fara í tökur. Í ferlinu öllu hafa margir góðir aðilar komið að myndinni, en árið 2012 var ákveðið að fara aftur af stað og koma þá Friðrik Þór Friðriksson, Kristinn Þórðarson og Leifur B. Dagfinnsson hjá Truenorth að framleiðslu myndarinnar.

Tökur á myndinni hófust á mánudaginn en fyrir utan eistnesku leikarana fara þeir Atli Rafn Sigurðarson og Tómas Lemarquis einnig með burðarhlutverk í myndinni.

„Stemningin á fyrsta tökudegi var virkilega góð, það gekk allt rosalega vel, þetta er algjört draumalið sem er með okkur. Tökur koma til með að fara fram næstu vikur í Reykjavík, Kópavogi, Hafnarfirði og Keflavík. Í framhaldinu færum við okkur svo til Djúpavogs og svo Rússlands í janúar og endum svo í Eistlandi í vor,“ segir Ari.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×