Innlent

Fjallað um Birnu víða um heim

Samúel Karl Ólason skrifar
Síðustu daga hafa erlendir fréttamiðlar um heim allan fjallað um andlát Birnu Brjánsdóttur og þá umfangsmiklu leit sem fram fór um helgina. Fjölmiðlar allt frá Katar til Suður-Afríku hafa sagt frá því hvernig íslenska þjóðin hefur verið slegin síðustu daga.

Flestar fréttirnar eiga það sameiginlegt að byggja á frétt AFP fréttaveitunnar og íslenskra miðla eins og Iceland Magazine.

Þá varpa margar þeirra ljósi á það hvað morð eru sjaldgæf hér á landi og að aðilar í slíkum málum tengist örsjaldan ekki fjölskyldu- eða vinaböndum. Frá árinu 2001 voru einungis 1,8 morð framið á ári að meðaltali.

Sem dæmi hefst grein New York Times á orðunum: „Það eru fáir staðir í heiminum þar sem ólíklegra er að maður sé myrtur en á Íslandi.“

Þá er einnig fjallað um að ein umfangsmesta leitaraðgerð sögunnar hafi farið fram í kjölfar hvarfs Birnu.

Meðal fjölmiðla sem hafa einnig fjallað um málið eru BBCGuardianDailyMail, Fox News og USA Today.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×