MIÐVIKUDAGUR 22. MAÍ NÝJAST 19:04

Dansaði upp að hnjám í Héraðsskólanum

FRÉTTIR

Fitnessþrælarnir

Fréttablaðið Bakþankar 21. apríl 2012 11:00
Atli Fannar Bjarkason, blaðamaður á Fréttablaðinu.
Atli Fannar Bjarkason, blaðamaður á Fréttablaðinu.
Atli Fannar Bjarkason skrifar:
Tugir bronslitaðra, prótínþandra og kolvetnissveltra kroppa stigu á svið á dögunum og kepptu um Íslandsmeistaratitil í fitness. Þrátt fyrir ótvíræða líkamlega möguleika fólksins í ýmsum íþróttum, þá snerist þessi keppni um hver leit best út samkvæmt fyrirfram tilgreindum anatómískum stöðlum.

Eðlilega koma slíkar keppnir fólki spánskt fyrir sjónir. Sumir líta á keppendurna sem einhvers konar viðundur á meðan aðrir hafa áhyggjur af ofþjálfun keppenda, enda sé hún slík að konur hafi hætt að fara á túr í miðjum undirbúningi fyrir keppni.

Það er rosalega auðvelt að finna eitthvað óeðlilegt við keppni í fitness. Sérstaklega fyrir þá sem nota ekki efni úr brúsa til að breyta húðlit sínum. Það breytir því samt ekki að ofþjálfunarrökin eru þau lélegustu sem hægt er að finna gegn keppninni. Allt afreksíþróttafólk sem tekur sig alvarlega reynir á þolmörk líkama síns til að ná besta mögulega árangrinum. Það skal enginn segja mér að mannslíkaminn fagni æfingum fyrir maraþonhlaup eða að það sé eðlilegt að spila meira en hundrað leiki á tímabili, eins og þeir sem leika til úrslita í NBA. Afreksíþróttir eru ekki stundaðar af bláeygu hugsjónafólki með ungmennafélagsanda í brjósti. Þetta fólk er ekki í þessu til að vera með.

Fitness liggur hins vegar betur við höggi en aðrar íþróttir vegna þess að árangurinn er fagurfræðilegur. Engu máli skiptir hversu þungum hlutum keppendur geta lyft eða hversu mörg mörk þeir skora – sigurvegarinn þarf að vera skorinn, bronslitaður og eiga efnislítil, pallíettuskreytt baðföt sem sækja áhrif í tískustrauma níunda áratugarins.

Eins og margir þá skil ég ekki hvað rekur fólk hálfnakið upp á svið að spenna gluteus maximus og biceps brachii. Ég skil ekki einu sinni þessi orð sem ég var að skrifa. En þrátt fyrir skilningsleysi, skort á smekk og jafn vel smá fordóma, þá trúi ég ekki að fitnessfólkið sé hópur af þrælum, sem grimmir einkaþjálfarar skikka til að æfa tvisvar á dag og sneiða hjá öllu sem er gott á bragðið.

Deila
Athugið. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Vísir hvetur lesendur til að halda sig við málefnalega umræðu. Einnig áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi eða ósæmilegar athugasemdir.
Bakþankar 22. maí 2013 06:00

Innri maður í iðrum jarðar

Það upplifa allir einhvern tímann eitthvað sem sýnir hvað í þeim býr. Stundir þar sem kringumstæður verða þess konar að það reynir verulega á og innri maður sýnir sig. Meira
Bakþankar 21. maí 2013 10:00

Hin ávanabindandi sigurvíma

Í sumar fagna ég því að heil átta ár eru síðan ég hóf minn feril sem knattspyrnuáhangandi. Ég er ein af þessum svokölluðu "antisportistum“ sem æfði hestaíþróttir og samkvæmisdans á yngri árum á ... Meira
Bakþankar 18. maí 2013 06:00

Játning úr aðdáendaklúbbi Jennifer

Ég veit ekki af hverju ég tók skýra afstöðu í skilnaði sem kom mér ekkert við og ég vissi ekkert um. En ég skyldi halda með Jennifer hvað sem tautaði og raulaði. Þessi Angelina virtist eitthvað tvöföl... Meira
Bakþankar 17. maí 2013 12:00

VSUAHÁÍ og hagvöxturinn

Robert Kennedy sagði eitt sinn að landsframleiðsla mældi allt nema það sem gerði lífið þess virði að lifa því. Meira
Bakþankar 16. maí 2013 07:00

Fegurð

Ég ætla að fjalla um fegurð í þessum stutta pistli. Þar sem umfjöllunarefnið er víðfeðmt mun ég takmarka mig við fegurð fótboltamarka. Ég er ekki að tala um mörkin sjálf heldur framkvæmdina að skora m... Meira
Bakþankar 15. maí 2013 09:00

Girðingarlykkjurnar

Fyrir fáeinum dögum hlustaði ég á sögu sem gerði mig bæði reiðan og dapran í senn. Hér á ég við umfjöllun Kastljóssins um hugmyndir forsvarsmanna Heilbrigðisstofnunarinnar á Ísafirði um lokun hjúkruna... Meira
Bakþankar 14. maí 2013 11:30

Fjölþjóðleg flækja

Góðan dag. Er þessi trefill rétt merktur? Getur verið að hann kosti 4.000 krónur? - No. It is 400 krónur. - Nú jæja, þá ætla ég að fá hann. - Yes. 400 krónur, please. - Gjörðu svo vel. - Thank you. Ha... Meira
Bakþankar 13. maí 2013 07:00

Þroskaheft femínista- hlussa gekk inn á bar…

Tjáningarfrelsi er töff og ég vil hafa rétt á því að segja hvað sem mér sýnist hvenær sem mér sýnist en ég er líka meðvituð um að það sem ég segi hefur áhrif og því fylgir ábyrgð. Á sama tíma og ég he... Meira
Bakþankar 11. maí 2013 07:00

Uppáklædd eðla

Þegar ég leit í spegil í morgunskímunni um daginn sýndist mér ég sjá eðlu. Eitthvert skriðdýrslegt blik virtist vera í augum mér og svo virtist sem húðin hefði fengið á sig grænleitan blæ. Meira
Bakþankar 10. maí 2013 12:00

Bakarinn á Nørregade

Ég hafði gaman af dönsku í grunnskóla. Mál og menning þjóðarinnar lagðist vel í mig, mamma hlýddi mér yfir og yfirleitt fékk ég hæstu einkunnirnar í dönsku. Meira
Bakþankar 10. maí 2013 07:00

Kveðja af botninum

Vefsíðan Careercast hefur undanfarin ár lagst í ítarlega rannsókn á því hver séu bestu og verstu störf í hinum vestræna heimi. Á listanum eru 200 starfsstéttir og niðurstaðan byggir á fimm mælikvörðum... Meira
Bakþankar 08. maí 2013 07:00

Borgardama bíður eftir vori

Ég skellti mér í drifhvítum strigaskóm í vinnuna í morgun. Skildi úlpuna eftir heima og renndi ekki einu sinni upp jakkanum. Meira
Bakþankar 04. maí 2013 15:00

I approve this message

Í nýafstöðnum kosningum klæddu gamlar konur sig upp, einhverjir flögguðu, allavega einn fékk ís og enginn gerði þarfir sínar í kjörkassa. ÖSE-menn voru sáttir, herbergi var innsiglað og svo fundið út ... Meira
Bakþankar 03. maí 2013 07:00

Ys og þys út af engu

Viðbrögðin við úrslitum kosninganna á laugardag voru flest fyrirsjáanleg. Stuðningsmenn Bjartrar framtíðar og Pírata glöddust en Samfylkingarfólk og stuðningsmenn minnstu flokkanna grétu. Fögnuður Fra... Meira
Bakþankar 02. maí 2013 13:00

Umburðarlyndi

Umburðarlyndi er einn af mínum helstu kostum. Ég er umburðarlyndur maður og ég geri umburðarlyndi hátt undir höfði í skoðunum mínum til lífsins. Meira
Bakþankar 01. maí 2013 09:45

Formennirnir í lífi mínu

Nú er svo komið að í hvert sinn sem ég fer úr fötunum verður mér hugsað til Jóhönnu Sigurðardóttur, fráfarandi forsætisráðherra. Ég get útskýrt. Meira
Bakþankar 30. apríl 2013 15:00

Allir vinna, enginn tapar

Þegar ég var tiltölulega nýskriðin á þrítugsaldurinn nam ég markaðsfræði við skóla einn í Danmörku. Stuttu eftir að önnin hófst kom í ljós að áhugi minn á mörkuðum, hagkerfum og tölfræði var takmarkað... Meira
Bakþankar 29. apríl 2013 08:00

Mitt Ísland og hitt Ísland

Þegar þessi pistill er skrifaður eiga kosningar til Alþingis 2013 eftir að fara fram. Þegar þú hins vegar lest þessi orð eru þær afstaðnar og ný ríkistjórn yfirvofandi. Meira
Bakþankar 27. apríl 2013 06:00

Þingvallastjórnin

Vorið 2007 tók ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar við völdum. Ég man þá ljúfu tilfinningu sem greip mig við að sjá fréttaljósmyndir af formönnum flokkanna, þeim Geir Haarde og Ingibjörgu Só... Meira
Bakþankar 26. apríl 2013 11:00

Samið við hræfugl

Í íslenskri menningu er hrafninn heldur illa liðinn fugl. Hann er hrææta, kroppar augun úr hrútshausum, gjarnan bendlaður við sjálfan djöfulinn, feigðarboði og sálnasækir. Þetta rímar ekki við mín ein... Meira
Bakþankar 25. apríl 2013 06:00

Heimskur maður kýs

Ég kann ekki að meta sjóræningja. Í mér býr djúpstæður frumótti við sjóræningja. Mér svelgdist á kaffinu mínu þegar ég las að í framboði væri flokkur sem kennir sig við sjóræningja. Hvað næst? Hákarla... Meira
Bakþankar 24. apríl 2013 06:00

Legið á línunni

Jæja, viljið þið ekki bara fara að hætta þessu stelpur mínar? Hafið þið nokkuð fleira að segja?“ Meira
Bakþankar 22. apríl 2013 07:00

Líf útlendinga

Ég var einmitt að ljúka við æfingaferli sem leikstjóri hjá Þjóðleikhúsinu og núna, eftir velheppnaða frumsýningu, er ég byrjuð á íslenskunámskeiði hjá Mími símenntun. Mér finnst íslenskunám mitt hafa ... Meira
Bakþankar 20. apríl 2013 06:00

Að læka skatta

Um daginn áttum við vinur minn spjall sem hefur setið í mér. Ég talaði um nauðsyn þess að lækka skatta til að auka hagvöxt og svo ætlaði ég eflaust að segja eitthvað annað mikilvægt þar að lútandi þeg... Meira
Bakþankar 19. apríl 2013 07:00

Megavikupitsur handa öllum!

Það eru 1.512 Íslendingar í framboði til Alþingis, fleiri en nokkru sinni. Ef öllu þessu fólki yrði komið fyrir á fótboltavelli væru 69 fótboltalið á hvorum vallarhelmingi. Þetta er rosalega margt fól... Meira
  • Fréttir
  • Sport
  • Viðskipti
  • Lífið
  • Skoðun

Mest lesið

Forsíða / Umræðan / Bakþankar / Fitnessþrælarnir
365 miðlar ehf.
Skaftahlíð 24
105 Reykjavík
sími 512 5000