Heilsa

Fitandi erfðir

MYND/Getty

Þýskir og bandarískir vísindamenn hafa einangrað erfðabundið mólekúl sem stýrir þyngd fólks, svokallað „eirðaleysis-mólekúl". Þeir sem bera það með sér eru ólíklegri til að fitna. Frá þessu segir á vef BBC.

Vísindamennirnir hafa skoðað mýs sem ýmist bera hafa mólekúlið eða ekki. Segja þeir augljósan mun vera á vaxtarlagi músanna.

Eflaust er það mörgum viss huggun að offita sé ekki einungis líferni fólks að kenna. Þetta er í annað sinn á stuttum tíma sem vísindamenn komast að þeirri niðurstöðu. Breskir vísindamenn fundu einnig fyrir stuttu erfðaefni sem þeir telja að stjórni líkamsþyngd fólks






Fleiri fréttir

Sjá meira


×