Skoðun

Fiskistofumálið – mistök eða leiðrétting?

Pétur Bjarnason skrifar
Fiskistofumálið og ýmislegt sem hefur verið fleygt fram í því samhengi hefur vakið athygli mína. Í áratugi hefur heyrst af því að stefna allra stjórnmálaflokka hafi í orði verið á þá lund að gæta beri að jafnvægi í byggð landsins og byggja upp störf utan höfuðborgarsvæðisins. Þetta á ekki síst við um opinber störf, sem þegar eru um fjórðungur allra starfa í landinu og það hlutfall mun hækka, ef þróunin verður eins og í velferðarlöndum í kringum okkur. Ríkið verður því að reka þá starfsemi, sem er á þess vegum víðar en á höfuðborgarsvæðinu og þess vegna væntanlega hafa allir stjórnmálaflokkar haft þetta á stefnuskrá sinni um áratugaskeið.

En af hverju aðeins í orði en ekki á borði? Það hefur nefnilega komið í ljós í þessari umfjöllun um flutning Fiskistofu að opinberum störfum úti á landi hefur á undanförnum árum fækkað á meðan störfum á vegum ríkisins fjölgar og þar með hefur opinberum störfum á landsbyggðinni fækkað hlutfallslega enn meira. Spurningin er því hverju sé um að kenna að opinber störf dreifast svona ójafnt á milli landsbyggðar og höfuðborgarsvæðisins, þrátt fyrir þessa stefnu stjórnmálaflokkanna. Stefnu sem oftar en ekki kemst í stjórnarsáttmála, sem flaggað er á tyllidögum. Er það vegna ístöðuleysis stjórnmálamanna? Jú, vissulega höfum við oft orðið vitni að því að stjórnmálamenn fylgja ekki þessum stefnumálum flokka sinna þegar reynir á. (Það á reyndar við um fleiri mál!)

Gífurleg mótstaða

En við höfum líka alltaf þurft að horfa á gífurlega mótstöðu embættismanna, þegar flutningur er nefndur á nafn. Og miðað við hve illa hefur gengið að fá opinber störf út á land og hve drjúgan þátt embættismenn hafa átt í að sú stefna hefur í reynd breyst í andhverfu sína, má álykta að embættismenn hafi haft mjög einbeittan brotavilja þegar reynt er að fylgja stefnu og ákvörðunum stjórnvalda í þessum efnum.

Þegar Fiskistofa var stofnuð hafði tiltölulega nýlega verið samþykkt þingsályktun á Alþingi um að miðstöð stjórnsýslu og menntunar í sjávarútvegi skyldi staðsett á Akureyri. Það hefði því verið eðlilegt að Fiskistofa hefði verið staðsett á Akureyri. Það má í raun segja að það hafi verið mistök í upphafi að stofna hana í Reykjavík. Og í ákveðnum skilning má segja að með ákvörðun ríkisstjórnarinnar um að flytja Fiskistofu til Akureyrar sé verið að leiðrétta mistök frá fyrri árum. Mér finnst það bara gott mál en ég eins og aðrir legg þó áherslu á að það komi einstaklingum sem hjá Fiskistofu starfa og fjölskyldum þeirra ekki illa. Hjá því mætti auðveldlega komast með því að gefa sér góðan tíma í flutninginn, þannig að hann haldist í hendur við þá starfsmannaveltu, sem hvort eð er verður hjá stofnuninni.




Skoðun

Skoðun

Saman gegn ríkisofbeldi

Vilhjálmur Yngvi Hjálmarsson,Örlygur Steinar Arnaldsson,Sigurhjörtur Pálmason,Simon Valentin Hirt,Kristbjörg Arna E. Þorvaldsdóttir,Ari Logn,Margrét Rut Eddudóttir skrifar

Sjá meira


×