Innlent

Fiskikóngurinn segist engin afæta vera

Jakob Bjarnar skrifar
Fiskikóngurinn er einlægur og opinskár hlær að því að vera kallaður afæta.
Fiskikóngurinn er einlægur og opinskár hlær að því að vera kallaður afæta. visir/stefán
„Einhver nefndi að ég væri „afæta“. Finnst það nú eiginlega bara fyndið orð og að einhver nefni mig afætu. Sá þekkir mig greinilega ekki mikið,“ segir Kristján Berg Ásgeirsson sem betur er þekktur sem Fiskikóngurinn.

Reykjavík Media, í samstarfi við Fréttatímann, birti í gærkvöldi úttekt sem fjallar um þá sem finna má í Panamaskjölunum og starfa við fiskútflutning. Ein hliðarsaga í því, sem Vísir greindi frá, var um Fiskikónginn, sem átti einn slíkan aflandsreikning. Öfugt við flesta þá sem til umfjöllunar eru í úttektinni leysti Fiskikóngurinn greiðlega úr öllum spurningum rannsóknarblaðamannanna. Og sagðist löngu hættur að nota þennan reikning, hann metur það sem svo að hann hafi tapað 200 milljónum á hruninu. „Ég er bara fisksali,“ sagði Kristján og að reikninginn hafi hann stofnað samkvæmt ráðleggingum bankamanna.

Fréttin sú vakti mikla athygli og hefur nokkur umræða spunnist á athugasemdakerfi Vísis. Þar er meðal annars lagt uppúr því þeim orðum Kristjáns þess efnis að reikningurinn sé þannig til kominn að hann vildi ekki greiða skatt í Danmörku, þar sem hann var þá búsettur, af greiðslu sem hann fékk fyrir sölu á fiskbúðinni Vör. Kristján sá þá fyrir sér að hann þyrfti aldrei að vinna ærlegt handtak það sem eftir væri. Einhver telur það sérkennilegt, að vilja búa í Danmörku en ekkert leggja til samfélagsins þar – og kallar Kristján afætu.

Kristján Berg, sem telur sig ekki hafa neitt að fela og vill leggja öll spil á borðið, svarar viðkomandi á athugasemdakerfinu:

„Hef aldrei fengið styrk, bætur, eða eitthvað frítt. Alltaf unnið hörðum höndum fyrir lífinu og geri enn. Finnst reyndar vinnan mín vera það skemmtilegasta sem ég geri. Ég hef ekkert að fela varðandi þetta félag sem ég stofnaði á sínum tíma, frá ráðleggingum fólks úr bankageiranum,“ segir Fiskikóngurinn opinskár. Og bætir við:

„Ef það eru einhverjar fleiri spurningar, þá svara ég þeim öllum með glöðu geði.“ Og með fylgir broskall.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×