Innlent

Fiskikóngurinn í Panamaskjölunum

Jakob Bjarnar skrifar
Fiskikóngurinn leysti greiðlega úr spurningum rannsóknarblaðamanna meðan aðrir tóku þeim illa.
Fiskikóngurinn leysti greiðlega úr spurningum rannsóknarblaðamanna meðan aðrir tóku þeim illa.
Eitt þeirra nafna sem finna má í Panamaskjölunum er Kristján Berg Ásgeirsson sem betur er þekktur sem Fiskikóngurinn. Félag hans var stofnað árið 2006 á Seychelles-eyjum, Solberg Group Ltd. Ráðleggingar. Fiskikóngurinn segir þetta þannig til komið að þegar hann seldi fiskbúð sína Vör og flutti til Danmerkur hafi skattar þar verið „sextíu og eitthvað prósent. Ég var með einkabankaþjónustu í Lúxemborg og þeir ráðlögðu mér þetta.“

Fiskikóngurinn leggur öll spil á borðið

Þetta er meðal þess sem fram kemur í úttekt sem Reykjavík Media birti nú í kvöld í samvinnu við Fréttatímann. Þar kemur fram að fjöldi þeirra sem hafa starfað í útgerðinni eigi reikninga í aflandsfélögum. Flestir þeirra sem blaðamennirnir Ingi Freyr Vilhjálmsson og Jóhannes Kr. Kristjánsson reyndu að ná tali af vegna þessara reikninga brugðust ókvæða við. En, ekki Fiskikóngurinn sem lagði öll spil á borðið umsvifalaust. Hann segist hafa haft afskaplega lítinn áhuga á því að afrakstur hans vinnu síðastliðin 25 ár færu í skatta í Danmörku. Hann ætlaði ekki að láta danska ríkið hirða það.

Kristján Berg segist hafa borgað skatt af sölunni á Íslandi, svo kom hrunið og hann metur það sem svo að hann hafi tapað 200 milljónum á hruninu. Og félagið sé hann löngu hættur að nota.

„Ég flutti svo bara aftur til Íslands og er bara búinn að vinna baki brotnu síðan. Ég kann ekkert í fjárfestingum; ég er bara fisksali og hef alltaf bara verið það. Ég treysti öðrum mönnum til að gefa mér ráðleggingar um þetta. Ég vissi ekki betur á þessum tíma en að þetta væri í lagi. Ég var þrjátíu og tveggja ára og hélt ég gæti bara hætt að vinna og lifað á þessum peningum. Það er leiðinlegasta starf sem ég hef verið í,“ sagði einlægur Fiskikóngurinn við rannsóknarblaðamennina.

Margir fiskútflytjendur í Panamaskjölunum

Reykjavík Media og Fréttatíminn beina meðal annars sjónum sínum að Ellerti Vigfússyni fjárfesti og fiskútflytjanda en hann hefur átt í fyrirtækjum eins og Icelandic Group og Sjóvík. Nafn hans er að finna í Panamaskjölunum þeim sem komu frá lögmannsstofunni Mossack Fonseca. Ellert hefur lítinn áhuga á að ræða þau mál við blaðamenn en félög hans í skjölunum heita Elite Seafoods Panama Corp, Norys Capital Ltd. og Becot Holding S.A. – eru einungis þrjú af fyrirtækjunum í gögnum Mossack Fonseca sem tengjast íslenskum sjávarútvegi með beinum eða óbeinum hætti.

„Af íslenskum aðilum tengdum sjávarútvegi er Ellert einna umsvifamestur í Panamaskjölunum. Eitt af aflandsfélögum Eggerts, Norys Capital, fékk til dæmis lánaðar 850 milljónir króna frá Landsbankanum í Lúxemborg árið 2002,“ segir í ítarlegri umfjölluninni. Þar segir einnig: „Eitt af því sem vekur athygli í gögnunum er hversu margir fiskútflytjendur eru þar.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×