Körfubolti

Fiskikóngurinn er plötusnúður í Ásgarði | Kenndi Sigga Hlö

Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar
Kristján Berg er best þekktur sem Fiskikóngurinn en hann hefur brugðið sér í hlutverk plötusnúðar á heimaleikjum Stjörnunnar í Dominos deild karla í körfubolta í vetur.

Guðjón Guðmundsson fór og hitti Kristján í Ásgarði og í fiskbúðinni en þar má meðal annarra sjá Sigfús Sigurðsson handboltakappa sem les inn á innslög sem Kristján notar á leikjum Stjörnunnar.

„Það er þegjandi samkomulag um að hann lesi inn á kynningar fyrir mig,“ sagði Kristján um það að Valsarinn Sigfús lesi inn á kynningarnar. „Hann er dimmraddur og sexy rödd.“

Hvaðan kemur þessi hugmynd spyr Guðjón Kristján Berg.

„Ég kenndi Sigga Hlö og fékk hana þannig. Nei, við ólumst upp saman upp, í sama hverfi og vorum í sama skóla,“ sagði Kristján.

Allt innslagið má sjá hér að ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×