Matur

Fiski Tacos að hætti Evu Laufeyjar

VISIR.IS/SKJÁSKOT
Fiski Tacos með mangósalsa og bragðmikilli sósu

Uppskriftin er afar einföld. Byrjið á því að útbúa meðlætið og í lokin er orly deigið útbúið og fiskurinn djúpsteiktur. Þið getið notað hvaða fisk sem þið viljið í þennan rétt, prófið ykkur endilega áfram. 



Bragðmikil Chipotle sósa 

150 ml sýrður rjómi

3 msk majónes

2 hvítlauksrif

½ tsk paprikukrydd

salt og nýmalaður

2 – 3 msk Chipotle salsa (magnið fer eftir smekk)

1 msk sítrónusafi

Aðferð:

Setjið allt í matvinnsluvél eða maukið með töfrasprota. Kælið í að minnsta kosti 30 mínútur áður en þið berið hana fram.

Mangósalsa

1 mangó

3 tómatar

½ rauð paprika

1/2 rauðlaukur

handfylli kóríander

jalepenos, magn eftir smekk

salt og nýmalaður pipar

smá ólífuolía

safinn úr 1 límónu 

Aðferð:

Skerið allt hráefnið mjög smátt, blandið öllu saman í skál og bætið vökvanum við. Kryddið til með salti og pipar. Kælið í smástund áður en þið berið fram með fiskinum

Djúpsteiktur fiskur

200 ml hveiti

200 ml bjór

salt og nýmalaður pipar

500 g ýsa, skorin í bita 

Aðferð

Hrærið saman hveiti, bjór, salti og pipar í skál. Skerið fiskinn í bita og dýfið ofan í deigið.  Hitið olíu í stórum potti, athugið að nota olíu sem þolir djúpsteikingu. Þið getið athugað hvort olían sé tilbúin með því að setja smávegis af deiginu út í og ef deigið flýtur upp er hún tilbúin. Setjið nokkra bita ofan í pottinn og djúpsteikið í nokkrar mínútur, gott er að snúa bitunum við að minnsta kosti einu sinni. Þegar fiskurinn er orðinn gullinbrúnn er hann tilbúinn og veiddur upp úr pottinum, setjið á eldhúspappír og kryddið til með salti og pipar. Berið fiskinn fram með tortilla kökum, Chipotle sósu og mangó salsa.


Tengdar fréttir

Ítölsk eggjakaka með klettasalati og nýrifnum Parmesan

Um helgar þegar við höfum meiri tíma þá er upplagt að skella í eina ljúffenga eggjaköku með blaðlauk, kartöflum og grilluðum paprikum. Fyrirhafnarlítill og einstaklega bragðgóður morgunverður.

Haustsúpa sem yljar

Ég veit fátt betra en matarmiklar og kraftmiklar súpur sem ylja á köldum dögum. Haustið er gengið í garð og því er tilvalið að bjóða upp á súpu með einföldu hvítlauksbrauði.

Himnesk Nutella ostakaka

Ostakökur eru mjög einfaldar og þegar rjómaostur og Nutella koma saman er sannkölluð veisla fyrir bragðlaukana.

Brakandi ferskt Sesar salat með hvítlauksdressingu

Sesar salat er vinsælt víða um heim og það er ekki að ástæðulausu. Þetta salat er afar ljúffengt og sameinar það sem mörgum þykir afar gott, beikon, kjúkling, parmesan og góða dressingu...

Morgunmatur í krukku

Í síðasta þætti mínum útbjó ég nokkrar útgáfur af hollum og einföldum morgunmat, þessi Chia grautur er í sérstöku uppáhaldi hjá mér. Það tekur enga stund að skella í einn svona graut og hann er svakalega hollur en Chia fræin eru mjög nærringarrík og flokkast sem ofurfæða.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×