Viðskipti innlent

Finnur ráðinn forstöðumaður Náttúrufræðistofu Kópavogs

Stefán Árni Pálsson skrifar
Finnur Ingimarsson er líffræðingur.
Finnur Ingimarsson er líffræðingur.
Finnur Ingimarsson líffræðingur hefur verið ráðinn forstöðumaður Náttúrufræðistofu Kópavogs. þetta kemur fram í tilkynningu frá Kópavogsbæ en alls 14 sóttu um stöðuna sem auglýst var laus til umsóknar í mars síðastliðnum. Einn dró umsókn sína til baka. Finnur var talinn hæfastur umsækjenda til að gegna starfinu.

Finnur er með B.Sc. próf í líffræði frá Háskóla Íslands og B.Sc.hon. í líffræði frá sama skóla. Finnur hefur starfað við Náttúrufræðistofu Kópavogs frá árinu 1993 og hefur á þeim tíma tekið þátt í skipulagningu og framkvæmd rannsóknarverkefna sem Náttúrufræðistofan hefur tekið að sér. Hann hefur einnig haft yfirumsjón með móttöku og leiðsögn hópa um náttúrugripasafn Náttúrufræðistofunnar en safnið er eina náttúrugripasafnið á höfuðborgarsvæðinu sem opið er almenningi. Hundruð skólabarna sækja safnið heim á ári hverju.

Síðasta eina og hálfa árið hefur Finnur verið settur forstöðumaður  Náttúrufræðistofunnar en starfinu gegndi áður Hilmar J. Malmquist sem nú er forstöðumaður Náttúruminjasafns Íslands.

Náttúrufræðistofa Kópavogs er í sama húsnæði og Bókasafn Kópavogs og tilheyrir Listhúsi Kópavogsbæjar en þar undir falla einnig Gerðarsafn, Salurinn, Héraðsskjalasafn Kópavogs og Tónlistarsafn Íslands.

Náttúrufræðistofa Kópavogs starfar samkvæmt menningarstefnu Kópavogsbæjar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×