Íslenski boltinn

Finnur Orri um Pirlo: Gæðin leka af þessum töffara

Goðsögnin Andrea Pirlo.
Goðsögnin Andrea Pirlo. Vísir/getty
Finnur Orri Margeirsson, miðjumaður KR, segir að það hafi verið áhugavert að kljást við ítölsku goðsögnina Andrea Pirlo í leik KR og New York City í nótt.

Þetta var síðasti leikur KR á þessu sterka æfingarmóti en ásamt KR voru New York City, FC Cincinatti og HB Köge þátttakendur.

Verkefnið var að einhverju leyti auðveldara fyrir miðjumenn KR-inga þegar kom í ljós að Frank Lampard yrði ekki með en þeir fengu þess í stað að kljást við Andrea Pirlo, fyrrum miðjumann Juventus, AC og Inter Milan og ítalska landsliðsins.

„Hef fengið auðveldari verkefni en að ná af honum boltanum, gæðin leka af þessum töffara! En virkilega gaman að spila þennan leik,“ sagði Finnur Orri á Twitter-síðu sinni eftir leikinn.


Tengdar fréttir

Pirlo meðal markaskorara í naumum sigri á KR

Andrea Pirlo skoraði fyrsta mark sitt fyrir New York City FC í naumum 2-1 sigri á KR í lokaleik æfingarmótsins sem liðin voru meðal þátttakenda í Bandaríkjunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×