Menning

Finnst skemmtilegra þegar ljóð ríma

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
Ragna Benedikta með verðlaun og viðurkenningarskjal frá Menntamálastofnun, fyrir skáldskap.
Ragna Benedikta með verðlaun og viðurkenningarskjal frá Menntamálastofnun, fyrir skáldskap. Mynd/Menntamálastofnun
Svona er verðlaunabotninn hennar Rögnu Benediktu.

Þegar mesta myrkrið er, minnstu ljósin greinast.

Sólardraumur sýnist mér í sálartetri leynast.

Ragna Benedikta er í 10. bekk í Brekkubæjarskóla á Akranesi en hver eru uppáhaldsfögin?

Þau eru íslenska vegna þess að mér þykir málfræði ótrúlega skemmtileg og danska, því ég hef rosalega mikinn áhuga á tungumálum.

Gerir þú mikið af því að yrkja? Nei, ég get ekki sagt það. Samt finnst mér það skemmtilegt.

Manstu hvenær þú byrjaðir? Það var í 8. bekk, þegar ég vann vísnakeppnina í fyrsta skipti.

Hvernig lærðir þú bragarhætti ferskeytlunnar? Ég lærði flest allt sem ég veit um ljóð í 7. bekk þegar stóra upplestrarkeppnin var í gangi.

Býrðu líka til órímuð ljóð? Nei, mér finnst skemmtilegra þegar ljóð ríma.

Áttu margar vísur í pokahorninu? Haha nei, þær eru því miður ekki margar.

Hver eru helstu áhugamálin þín? Í frístundum mínum finnst mér skemmtilegast að semja lög og texta, syngja, spila á píanó og eyði líka frístundum mínum í að læra.

Hvað varstu að gera síðasta sumar? Mig langaði að ferðast en var í bæjarvinnunni, oft í roki og rigningu. Vann með Fríðu vinkonu minni sem gerði dagana betri. Hún og fleiri vinir mínir björguðu alveg sumrinu.

Hvaða tónlistarmaður/kona er í uppáhaldi? Adele og Bruno Mars eru í miklu uppáhaldi hjá mér.

Ertu farin að velta fyrir þér framtíðaráformum? Já, markmiðið er að fara í framhaldsskóla, þaðan til útlanda að læra að verða læknir eða ljósmóðir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×