Lífið

Finnst líkami sinn ekkert spes

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Scarlett ræðir við Barböru.
Scarlett ræðir við Barböru.
Leikkonan Scarlett Johansson var einn af gestum Börburu Walters í gærkvöldi í þætti þar sem Barbara fór yfir tíu mest heillandi manneskjurnar árið 2014 að hennar mati. 

Scarlett er ein af manneskjunum sem Barböru þótti heillandi á árinu sem er að líða en í þættinum sagðist leikkonan ekki vera sérstaklega hrifin af sínum eigin líkama.

„Þetta er allt í lagi líkami. Ég myndi samt ekki segja að hann væri sérstaklega eftirtektarverður. Ég þoli ekki lærin mín og miðju,“ sagði Scarlett. Þá var hún einnig spurð út í hvernig henni finnist að vera talin kyntákn.

„Ég set aldrei á mig kynþokkafullan svip þannig að ég veit ekki hvað það þýðir að haga sér seiðandi.“

Aðrir á lista Barböru eru til að mynda söngkonan Taylor Swift og spjallþáttadrottningin Oprah Winfrey en á toppi listans trónir Amal Alamuddin, mannréttindalögfræðingurinn sem gekk að eiga leikarann George Clooney fyrr á árinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×