Fótbolti

Fimmti handhafi Gullskósins til Barcelona

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Handhafar Gullskósins sem hafa spilað (eða munu spila) með Barcelona.
Handhafar Gullskósins sem hafa spilað (eða munu spila) með Barcelona. Heimasíða Barcelona
Luis Suárez, nýjasti liðsmaður Barcelona, er fimmti nú- eða fyrrverandi handhafi Gullskósins - sem veittur er markahæsta leikmanni í Evrópu - sem gengur til liðs við katalónska stórveldið.

Sá fyrsti var Austurríkismaðurinn Hans Krankl, en hann fór til Barcelona árið 1978 eftir að hafa skorað 41 mark fyrir Rapid Wien tímabilið á undan. Krankl var þrjú ár í herbúðum Barcelona, en hann var markahæstur í La Liga með 29 mörk í 30 leikjum á sínu fyrsta tímabili með félaginu.

Tólf árum seinna samdi Barcelona við Búlgarann Hristo Stoichkov, en hann hafði skorað 38 mörk í 30 leikjum fyrir CSKA Sofia tímabilið 1989-90. Stoichkov var hluti af hinu svokallaða Draumaliði Johans Cruyff sem varð m.a. Evrópumeistari vorið 1992.

Árið 2004 kom Svíinn Henrik Larsson til Barcelona á frjálsri sölu frá Glasgow Celtic, en hann fékk Gullskóinn árið 2001 fyrir mörkin 35 sem hann skoraði fyrir skoska stórliðið tímabilið 2000-01. Larsson varð spænskur meistari í tvígang og einu sinni Evrópumeistari á þeim tveimur árum sem hann var í herbúðum Barcelona.

Thierry Henry gekk svo liðs við Barcelona frá Arsenal sumarið 2007, en hann var handhafi Gullskósins árin 2004 (30 mörk) og 2005 (25 mörk). Frakkinn var þrjú ár hjá Barcelona, þar sem hann vann spænska meistaratitilinn tvisvar og Meistaradeild Evrópu einu sinni.

Og nú, sumarið 2014, gengur Úrúgvæinn Luis Suárez, til liðs lið Barcelona, en hann er núverandi handhafi Gullskósins ásamt Cristiano Ronaldo, en þeir skoruðu báðir 31 mark fyrir lið sín - Liverpool og Real Madrid - á síðasta tímabili.


Tengdar fréttir

Suárez má ekki æfa á meðan banninu stendur

Alþjóðaknattspyrnusambandið FIFA staðfesti í dag að Luis Suárez væri óheimilt að taka þátt í æfingum með félagsliði sínu á meðan hann tekur út fjögurra mánaða keppnisbann.

Tilboð Barcelona í Suárez samþykkt

Liverpool staðfesti rétt í þessu að félagið hefði samþykkt tilboð Barcelona í Luis Suárez. Suárez sem er 27 ára hefur samþykkt undir fimm ára samning hjá Barcelona.

Blatter lofar Suarez

Forseti FIFA segir refsinguna sem Luis Suarez fékk rétta.

FIFA hafnaði áfrýjun Suárez

Alþjóða knattspyrnusambandið hafnaði áfrýjun Luis Suárez í dag en leikmaðurinn var dæmdur í fjögurra mánaða bann fyrir að hafa bitið Giorgio Chiellini á Heimsmeistaramótinu í sumar.

Verð stuðningsmaður Liverpool að eilífu

Luis Suárez þakkaði stuðningsmönnum Liverpool fyrir tíma sinn hjá félaginu á heimasíðu Liverpool í dag eftir að félagið samþykkti tilboð Barcelona.

Suárez mun kæra niðurstöðu FIFA

Lögmaður Luis Suárez staðfesti í dag að skjólstæðingur sinn myndi kæra niðurstöðu FIFA en knattspyrnusambandið staðfesti að Suárez þyrfti að taka út fjögurra mánaða keppnisbann í gær.

Forseti Barcelona lofar Suarez

Fulltrúar Liverpool og Barcelona hittust til að ræða möguleg vistaskipti Úrúgvæjans umdeilda.

Tyson segist skilja Suarez

Það þarf líklega ekki að koma neinum á óvart að hnefaleikakappinn fyrrverandi, Mike Tyson, segist skilja Luis Suarez mjög vel.

Zubizarreta hrósaði Suárez

Yfirmaður knattspyrnumála hjá Barcelona, Andoni Zubizarreta, hrósaði Luis Suárez eftir afsökunarbeiðni Suárez í gær. Suárez hefur verið orðaður við Barcelona undanfarnar vikur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×