Körfubolti

Fimmtánda þrefalda tvennan hjá Westbrook

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Russell Westbrook.
Russell Westbrook. vísir/getty
Þetta tímabil er þegar orðið einstakt hjá Russell Westbrook, leikmanni Oklahoma City, en hann er ekkert hættur að skila rosalegum tölum.

Hann var með sína fimmtándu þreföldu tvennu á tímabilinu í nótt er Oklahoma lagði Miami. Hann er kominn með þrjátíu slíkar á árinu. Í nótt skoraði hann 29 stig, tók 17 fráköst og gaf 11 stoðsendingar.

Sjá má tilþrif hans í nótt hér að ofan.

James Harden átti svo stórleik að venju í leik Texas-liðanna Dallas og Houston. Hann skoraði 34 stig og gaf 11 stoðsendingar í sigri síns liðs á Dallas.

Úrslit:

Boston-Memphis  113-103

Miami-Oklahoma  94-106

Dallas-Houston  107-123

LA Lakers-Houston  100-102

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×