Erlent

Fimmtán látnir eftir bílsprengju í Baghdad

Nína Hjördís Þorkelsdóttir skrifar
Myndin tengist fréttinni ekki beint.
Myndin tengist fréttinni ekki beint. Vísir/EPA
Að minnsta kosti fimmtán manns eru látnir eftir sjálfsmorðsárás í Baghdad. Árásarmaðurinn sprengdi bílsprengju á eftirlitsstöð í höfuðborginni. BBC greinir frá.

Að sögn írakskra yfirvalda eru yfir fjörutíu manns særðir eftir árásina.

Enginn hefur lýst yfir ábyrgð sinni á verknaðinum en vitað er að ISIS hefur staðið fyrir sambærilegum árásum að undanförnu í Írak.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×