Innlent

Fimmtán gistu í fjöldahjálparstöð á Seyðisfirði í nótt

Aðalsteinn Kjartansson skrifar
Aðstoðin var hugsuð fyrir þá ferðamenn sem ætluðu að gista í tjöldum.
Aðstoðin var hugsuð fyrir þá ferðamenn sem ætluðu að gista í tjöldum. mynd/guðjón
Seyðisfjarðardeild Rauða krossins opnaði í gærkvöld fjöldahjálparstöð fyrir ferðamenn vegna úrhellisrigningar á Seyðisfirði.

Guðjón Sigurðsson, formaður Seyðisfjarðardeildar Rauða krossins, segir að um fimmtán ferðamenn hafi gist í hjálparmiðstöðinni í nótt. Einhverjir Íslendingar leituðu í miðstöðina eftir að hafa þurft að snúa frá tjaldstæðinu í bænum.

Það er búið að stytta upp og Norræna fer frá Seyðisfirði í kvöld sem þýðir að gistirými losnar en aðstoðin var hugsuð fyrir þá ferðamenn sem ætluðu að gista í tjöldum. Fjöldahjálparstöðin verður því ekki opin í nótt.

Sjálfboðaliðar Rauða krossins á Seyðisfirði mönnuðu fjöldahjálparstöðina.Samkvæmt vef Veðurstofu Íslands var rigningin 75,5 millimetrar á Seyðisfirði í gær. Hún var hins vegar 99 millimetrar á Dalatanga.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×