Handbolti

Fimmtán ára með sex mörk í bikarúrslitaleiknum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Lovísa Thompson
Lovísa Thompson Vísir/Þórdís Inga
„Hún er bara hún. Hún er alveg frábær,“ segir Laufey Ásta Guðmundsdóttir, fyrirliði Gróttuliðsins, um hina fimmtán ára gömlu Lovísu Thompson sem skoraði sex mörk úr átta skotum í bikarúrslitaleiknum á móti Val og fimm úr fimm skotum mörk í undanúrslitaleiknum á móti ÍBV.

„Ég get ekki séð mig fyrir mér hafa gert þetta þegar ég var fimmtán ára,“ sagði Laufey í léttum tón. Anna Úrsúla Guðmundsdóttir hrósar einnig Lovísu.

„Hún stóð sig ótrúlega vel undir pressu og á framtíðina fyrir sér. Það hefðu margir koxað á svona mómenti en hún tók þetta á sig og stóð sig gríðarlega vel,“ sagði Anna Úrsúlu um Lovísu sem er fædd árið 1999.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×