Glamour

Fimmta Vogue-forsíða Cara Delevnigne

Ritstjórn skrifar
September tölublað breska Vogue með forsíðustjörnunni Cara Delevigne.
September tölublað breska Vogue með forsíðustjörnunni Cara Delevigne.
Breska fyrirsætan Cara Delevigne situr í fimmta sinn fyrir á forsíðu breska Vogue. Hún sat fyrst fyrir á forsíðunni í mars árið 2013, því má segja að hún hafi náð þessum merka árangri á ansi skjótum tíma. Hún á þó ansi langt í land ef hún ætlar að ná meti Kate Moss, sem hefur setið 37 sinnum fyrir á forsíðu breska Vogue. 

Á forsíðunni klæðist hún Balenciaga en þetta er í fyrsta sinn sem að nýja lína þeirra undir stjórn Demna Gvasalia er á svo stórri forsíðu. 






×