Lífið

Fimmta prentun Öræfa

Freyr Bjarnason skrifar
Ófeigur Sigurðsson hefur slegið í gegn með Öræfum.
Ófeigur Sigurðsson hefur slegið í gegn með Öræfum. Vísir/Stefán
Forlagið hefur brugðist við miklum vinsældum Öræfa eftir Ófeig Sigurðsson með því að láta prenta bókina í fimmta sinn, svo hún verði fáanleg í verslunum á Þorláksmessu.

Fjórða prentunin kom í hús á laugardaginn síðasta og kláraðist hún samdægurs. Forsvarsmenn Forlagsins fullyrða að þeir hafi aldrei látið endurprenta bók svo skömmu fyrir jól.

Öræfi hefur verið tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna í flokki fagurbókmennta, auk þess sem hún var valin besta íslenska skáldsagan af starfsfólki bókaverslana víða um land. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×