Bílar

Fimmta kynslóð Nissan Micra frumsýnd í París

Finnur Thorlacius skrifar
Fimmta og nýjasta kynslóð Nissan Micra var kynnt í morgun á bílasýningunni í París. Örtröð gesta kom sér fyrir á sýningarbás Nissan þegar bíllinn var kynntur, en þessi vinsæli smábíll verður frumsýndur hjá BL í byrjun mars.

Nissan Micra var fyrst kynnt til sögunnar fyrir 33 árum og hefur þessi bíll keppt við aðra magnsölubíla í þessum flokki minni fólksbíla, þ.e. bíla eins og Volkswagen Polo, Ford Fiesta, Toyota Yaris, Suzuki Swift og Renault Clio, svo einhverjir séu nefndir.

Nissan segir að hið nýja útspil þeirra í formi Nissan Micra sé enn einn djarflega teiknaður bíll fyrirtækisins á síðustu árum og kemur hann í kjölfar Nissan Juke, Qashqai og Note, sem allir hafa fengið frábærar móttökur. Nissan kallar nýjan Micra bíl sinn flaggskipið á meðal nýrra Nissan bíla og ætlar sér greinilega stóra hluti með þessum nýja bíl.

Laglegt innanrými í Nissan Micra





×