Erlent

Fimm ungmenni myrt í Kanada

Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar
vísir/afp
Fimm ungmenni, fjórir karlmenn og kona, voru stungin til bana í heimahúsi í Calgary í Kanada í nótt. BBC greinir frá.

Þrír voru úrskurðaðir látnir á slysstað en tveir létust af sárum sínum á sjúkrahúsi skömmu síðar. Talið er að þetta sé versta fjöldamorð í sögu borgarinnar.

Tæplega tvítugur karlmaður er í haldi lögreglu, grunaður um verknaðinn. 

Borgarstjórinn í Calgary hefur sent frá sér samúðarkveðjur til aðstandenda þeirra látnu og var minningarstund haldin í borginni í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×