Íslenski boltinn

Fimm þúsund miðar seldir

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Vísir/Daníel
Alls hafa fimm þúsund miðar selst á leik FH og Stjörnunnar í Pepsi-deild karla á laugardaginn. Það stefnir í að það verði uppselt á leikinn.

Rúmlega sex þúsund manns komast fyrir á Kaplakrikavelli þar sem leikurinn fer fram en í húfi er sjálfur Íslandsmeistaratitillinn í knattspyrnu.

Almenn forsala hefst í Kaplakrika klukkan níu í fyrramálið.


Tengdar fréttir

Ekki hægt að kaupa miða á úrslitaleikinn á leikdegi

FH og Stjarnan mætast á laugardaginn í hreinum úrslitaleik um Íslandsmeistaratitil karla í fótbolta en leikurinn fer fram klukkan 16.00 á Kaplakrikavelli í Hafnarfirði. FH-ingar eru búnir að skipta upp stúkunum og fyrirkomulag við sölu miða á leikinn verður með sérstökum hætti. Almenn forsala hefst í Kaplakrika á fimmtudagsmorgun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×