Innlent

Fimm þúsund mál bíða afgreiðslu hjá sýslumanni

Lillý Valgerður Pétursdóttir skrifar
Áhrifa verkfallsins gætir víða í samfélaginu.
Áhrifa verkfallsins gætir víða í samfélaginu. Vísir/Stefán
Alvarleg staða er komin upp hjá sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu þar sem um fimm þúsund mál bíða afgreiðslu vegna verkfalls Bandalags háskólamanna. Þá skapar verkfallið ógn við öryggi Landspítalans þar sem á þriðja þúsund sjúklinga bíður eftir að komast í röntgenrannsóknir. Áhrifa verkfallsins gætir víða í samfélaginu.

Tvær og hálf vika eru nú frá því að verkfallsaðgerðir BHM hófust en á meðal þeirra sem lögðu þá niður störf eru lögfræðingar hjá Sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu. „Öll mál sem að lögfræðingar koma að, sem eru langflest mál embættisins, þau eru í bið og það safnast bara upp málin. Hún er náttúrulega mjög alvarleg þessi staða. Ef við tökum þinglýsingarskjöl til dæmis þá gæti ég trúað að það væri nálægt 3.700 skjöl núna sem að bíða þinglýsingar,“ segir Þórólfur Halldórsson sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu.

Þá hafa nauðungarsölur líka verið felldar niður og ekki er hægt að ganga frá skilnaði svo fleira sé nefnt. „Þetta er gríðarlegur málafjöldi sem að við erum að horfa á væntanlega í einhvers staðar svona 5000 mál,“ segir Þórólfur.

Verkfallið hefur haft mikil áhrif á starfsemi Landspítalans þar sem fresta hefur þurft fjölmörgum aðgerðum og rannsóknum. „Það er lengri bið á bráðamóttökum. Það eru færri sjúklingar komast að. Aðgerðum er frestað og meðferðum á sjúklingum líka frestað,“ segir Óskar Reykdalsson framkvæmdastjóri rannsóknarsviðs Landspítalans.

Fresta hefur þurft um 150 þúsund blóðrannsóknum á spítalanum en oft er um fleiri en eina rannsókn að ræða hjá hverjum sjúklingi. Þá hefur um 3500 myndgreiningarrannsóknum verið frestað og á þriðja þúsund sjúklinga bíða eftir að komast í röntgenrannsóknir. „Dagsdaglega er spítalinn keyrður á fullu þannig að þegar það vantar þetta mikið í starfsemina, þá hefur það áhrif á, og er alltaf öryggisógn, “ segir Óskar.

Verkfallið hefur líka áhrif á aliflugaframleiðendur. Ekki er hægt að slátra fuglunum þar sem dýralæknar eru í verkfalli. „Það hefur engin slátrun átt sér stað hjá fyrirtækinu þessa viku. Húsin hjá okkur eru að fyllast. Við þó undirbjuggum okkur undir þetta verkfall hvað varðar fyrri hluta vikunnar en ástandið fer að verða mjög alvarlegt þegar að það kemur fram í næstu viku,“ segir Magnús Huldar Ingvarsson framleiðslustjóri Reykjagarðs.

Þá hefur verkfallið meðal annars áhrif á innflutning á plöntum en þúsundir platna eru fastar í gámum í Sundahöfn. Plöntusjúkdómafræðingur hjá Matvælastofnun þarf að samþykkja innflutning á plöntunum og árita pappíra svo þær fáist afhentar en hann er í verkfalli. „Þetta eru viðkvæmar vörur og dagaspursmál að ná þessu inn í landið þannig að þetta hefur þegar haft slæm áhrif,“ segir Árni Stefánsson forstjóri Húsasmiðjunnar. Hann segir plönturnar ekki þola marga daga án vökvunar. Þær þorni fljótt upp og þá sé ekki hægt að selja þær. „Þetta er allavega klárlega tjón sem að myndi hlaupa á milljónum,“ segir Árni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×