Handbolti

Fimm mörk frá Atla Ævari í tapi

Anton Ingi Leifsson skrifar
Atli Ævar á vítalínunni.
Atli Ævar á vítalínunni. vísir/getty
Atli Ævar Ingólfsson skoraði fimm mörk fyrir Guif sem tapaði fyrir Lugi HF á útivelli, 26-22, í sænsku úrvalsdeildinni í handbolta. Guif var 13-11 undir í hálfleik.

Aron Rafn Eðvarðsson stóð vaktina í marki Guif. Kristján Andrésson er þjálfari Guif, en þeir eru í fjórða sæti deildarinnar.

Tandri Már Konráðsson var ekki í leikmannahóp Ricoh gegn IFK Skövde, en Ricoh er í þriðja neðsta sæti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×