Fótbolti

Fimm mínútna kafli meistaranna kláraði Empoli

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Higuain setti tvö mörk í leiknum gegn Empoli.
Higuain setti tvö mörk í leiknum gegn Empoli. Vísir/getty
Góður fimm mínútna kafli í seinni hálfleik gerði útslagið í 3-0 sigri Juventus gegn Empoli á útivelli í fyrsta leik dagsins í ítalska boltanum.

Staðan var markalaus í hálfleik en argentínsku framherjarnir Pablo Dybala og Gonzalo Higuain náðu að brjóta ísinn í seinni hálfleik.

Dybala kom Juventus yfir á 65. mínútu en á 67. og 70. mínútu bætti Higuain við tveimur mörkum og kláraði leikinn.

Var þetta þriðji sigur Juventus í röð en Napoli getur saxað á forskot Juventus-manna seinna í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×