Viðskipti innlent

Fimm milljarða halli hjá Reykjavíkurborg

Sæunn Gísladóttir skrifar
Dagur B. Eggertsson er borgarstjóri Reykjavíkur.
Dagur B. Eggertsson er borgarstjóri Reykjavíkur. vísir/pjetur
Rekstrarniðurstaða samstæðu Reykjavíkurborgar, A og B hluta, var neikvæð um 4,98 milljarða króna en áætlun gerði ráð fyrir jákvæðri niðurstöðu um 7,4 milljarða króna.

Meginástæða þess er hækkun á gjaldfærslu lífeyrisskuldbindinga sem nema 14,7 milljörðum króna segir í tilkynningu. Þær skuldbindingar komu þó ekki til greiðslu á síðasta ári heldur er um skuldbindingar til næstu ára og áratuga að ræða. Aðrar ástæður eru fjármagnsgjöld Orkuveitu Reykjavíkur vegna gjaldfærðra gangvirðisbreytinga, alls 10,2 milljarðar sem til komin eru vegna áhrifa lækkunar álverðs en að hluta til kemur tekjufærður gengismunur á móti – vegna veikingar evru.

Rekstrarniðurstaðan er því 12,4 milljörðum króna lakari en gert var ráð fyrir. Rekstrarniðurstaða fyrir fjármagnsliði var jákvæð um 4.600 milljónir króna sem er 12,7 milljarða króna lakari niðurstaða en áætlun gerði ráð fyrir sem skýrist eins og áður sagði, aðallega af hækkun lífeyrisskuldbindinga.

Heildareignir samstæðunnar samkvæmt samanteknum efnahagsreikningi námu í árslok samtals 525.560 milljónum króna, heildarskuldir ásamt skuldbindingum voru 301.553 milljónir króna og eigið fé nam 224.007 milljónum króna en þar af nam hlutdeild meðeigenda 12,7 milljörðum króna.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×