Íslenski boltinn

Fimm mánaða eltingarleikur?

Tómas Þór Þórðarsom skrifar
FH-ingar urðu Íslandsmeistarar í fyrra.
FH-ingar urðu Íslandsmeistarar í fyrra. Vísir/Þórdís
Pepsi-deild karla í fótbolta fer af stað á sunnudaginn. Upphafsleikur mótsins er viðureign nýliða Þróttar og Íslandsmeistara FH en hann fer fram klukkan 16.00 á gervigrasi Þróttara í Laugardalnum.

FH er talið af allflestum langlíklegasta liðið til að vinna Íslandsmótið annað árið í röð og í áttunda sinn í sögu félagsins. Samfelld fótboltaveisla hefur verið í Hafnarfirðinum síðan liðið vann sinn fyrsta titil árið 20014, en síðan þá hefur liðið aldrei lent neðar en í öðru sæti.

FH-ingar eru það góðir

Með sigri á Þrótti kemst FH á topp deildarinnar. Engar fréttir þar. En með öruggum sigri, sem er ekki hægt að útiloka vegna munarins á gæðum liðanna, getur FH verið á toppnum eftir fyrstu umferðina. Hafnafjarðarliðið er það gott að það hefur burði til að vera á toppnum frá fyrstu umferð til þeirrar síðustu. Því gæti Íslandsmótið orðið fimm mánaða eltingarleikur annarra liða á borð við KR, Stjörnuna, Val og Breiðablik við ríkjandi meistara.

Stjarnan er eina liðið sem getur státað af öðrum eins leikmannahópi og FH. Þar eru nánast tveir menn í öllum stöðum, en þegar Rúnar Páll Sigmundsson, þjálfari liðsins, hefur alla menn heila þarf hann að halda 3-4 leikmönnum, sem gætu labbað inn í önnur lið deildarinnar, á bekknum.

Stjörnumenn geta orðið sinn versti óvinur í sumar séu ekki allir að keppa að sama markmiði en með liðsheild og gleði í Garðabænum eru gæðin næg til að endurheimta titilinn sem liðið vann 2014.

KR-ingarnir eru með mun minni hóp en firnasterkt byrjunarlið og nokkra til taks. Í Vesturbænum virðist sem svo að ungir leikmenn liðsins, þá sérstaklega fæddir 1998 og 1999, fái tækifæri og líklega verða þjálfararnir að gefa nokkrum tækifæri í fyrstu umferðunum vegna meiðsla lykilmanna. KR getur einnig blandað sér í titilbaráttuna haldist liðið þokkalega heilt. Varnarleikurinn verður líklega aðalsmerki Vesturbæinga í sumar.

Hörð barátta um Evrópusæti

Evrópubaráttan verður hörð enda gæðin í deildinni sjaldan verið meiri og líklega þau mestu síðan rétt fyrir hrun. Liðin hafa hrúgað inn erlendum leikmönnum en þeir hafa aldrei verið fleiri; 61 talsins þegar þú, lesandi góður, lest þessa grein. Þeim mun fjölga áður en félagaskiptaglugginn lokast.



Peningarnir eru augljóslega miklu meiri enda hágæða leikmenn í öllum liðum og útlendingar flestir búnir að vera hér í allan vetur. En íslensku leikmennirnir eru líka góðir og liðin sterk. Auðveldlega má búast við einu mest „sexí“ fótbolta­sumri í langan tíma.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×