Enski boltinn

Fimm leyndarmál Gylfa í aukaspyrnum: Lærðu að beygja boltann eins og Gylfi Þór

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Gylfi Þór Sigurðsson kann að sparka í fótbolta.
Gylfi Þór Sigurðsson kann að sparka í fótbolta. vísir/getty
Gylfi Þór Sigurðsson er einn af betri spyrnumönnum Evrópu en mörkin sem hann hefur skorað á sínum ferli og sérstaklega undanfarin misseri sanna það.

Íslenski landsliðsmaðurinn hefur farið á kostum með liði sínu Swansea seinni hluta tímabils í ensku úrvalsdeildinni og skorað níu mörk, en hann er helsta ástæða þess að liðið heldur sæti sínu í deildinni.

Gylfi Þór settist niður með slóvakíska blaðamanninum Lukas Vráblik þegar landsliðið heimsótti Slóvakíu og spilaði vináttuleik við heimamenn undir lok síðasta árs en viðtalið birtist í bresku útgáfu stærsta fótboltatímarits heims, Four Four Two, í byrjun árs.

Greinin í Four Four Twomynd/skjáskot
Í nýjasta hefti Four Four Two er Vráblik með annan hluta af viðtalinu við Gylfa Þór þar sem Hafnfirðingurinn segir frá spyrnutækni sinni; hvernig hann öðlaðist hana og heldur henni við. Hann gefur upp öll leyndarmálin sem geta kennt fólki að beygja boltann eins og Gylfi Þór Sigurðsson

Fimm leyndarmál Gylfa Þórs:

Númer 1: Mældu út hvað þú ert langt frá markinu

Númer 2: Gerðu heimavinnuna þína

Númer 3: Komdu þér upp rútínu

Númer 4: Einbeittu þér að boltanum

Númer 5: Endurtekningar, endurtekningar

Gylfi Þór útskýrir þetta frekar í Four Four Two en hann er, samkvæmt tölfræði ensku úrvalsdeildarinnar, einn besti leikmaður deildarinnar þegar kemur að því að taka aukaspyrnur.

Hér að neðan má sjá nokkrar af hans bestu fyrir Swansea.

Gylfi smellir boltanum í markmannshornið gegn Palace: Ein af löngu færi gegn Aston Villa: Öskrari á móti Arsenal:



Fleiri fréttir

Sjá meira


×