Erlent

Fimm létust í snjóflóði

Nokkur snjóflóð féllu í ölpunum í dag.
Nokkur snjóflóð féllu í ölpunum í dag. vísir/epa
Fimm tékkneskir skíðamenn létust í snjóflóði í austurrísku Ölpunum í dag. Tveir slösuðust lítillega en alls lentu sautján undir flóðinu.

Snjóflóðið féll í dal suður af Innsbruck í vesturhluta Austurríkis. Fleiri snjóflóð féllu í ölpunum í dag og bjarga þurfti nokkrum skíðamönnum í Tirol héraði. Ekki hafa borist fregnir um líðan þeirra.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×